Aka of hratt

Mynd 299095 Sjötíu og fimm voru staðnir að hraðakstri í Suðurhólum í Reykjavík á þriðjudag en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið í vesturátt, að Álftahólum. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 262 ökutæki þessa akstursleið og því óku 29% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða.

Þetta er óhugnanlega hátt hlutfall af þeim sem ekki virða hraðatakmörk.  Halda ökumenn að 30 km. hámarkshraði í íbúðargötum sé bara settur upp á grín.  Það mætti halda það.


mbl.is Hraðakstur í Breiðholti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ætli þessir ökumenn hefðu ekið svona hratt ef LÖGREGLAN SJÁLF hefði verið á staðnum? Það held ég ekki. Ég lít svo á þarna sé verið að veiða fólk í gildru.

Jói á hjólinu 24.4.2009 kl. 15:32

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Jói því miður er lögreglan oft að leika þennan leik að leynast einhver staðar og leiða menn í gildru. Allar aðgerðir lögreglu eiga að vera fyrirbyggjandi og ef hún er við umferðareftirlit á hún að vera vel sýnileg öllum ökumönnum, en ekki í ómerktum bílum.

Jakob Falur Kristinsson, 24.4.2009 kl. 17:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband