Orkuveitan

Auðvitað á að funda og ræða þessi mál hvað varðar arðgreiðslur Orkuveitunnar til eigenda sinna.  Það er ekki eðlilegt að greiða mörg hundruð milljónir í arð á sama tíma of starfsfólkið verður að taka á sig 400 milljóna króna kjaraskerðingu vegna erfiðrar stöðu Orkuveitunnar.  Það má að vísu réttlæta þetta með því að fjármál Reykjavíkurborgar eru í rúst og veitir þess vegna ekki af þessum peningum.  En þá á að skýra rétt frá staðreyndum.  En ekki vera í einhverjum feluleik með hlutina.
mbl.is Vill fundi um arðgreiðslur OR
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Viktor Úlfarsson

Birgðunum var deilt.  Starfsmenn tóku á sig 400 milljónir frá því sem þeir höfðu áður.  Eigendurnir, sveitarfélögin þrjú, tóku á sig 800 milljónir frá því sem þeir höfðu áður.  Þetta eru auðvitað ekki "venjulegir" eigendur eða "venjulegar" arðgreiðslur.  Það er ekki eins og þessir peningar endi á Tortúla.  Þetta eru fjármunir okkar sjálfra.  Sveitarfélögin hafa þegar þurft að skera niður í starfsemi sinni um 800 milljónir vegna þess sem þau tóku á sig.  Hefur einhver áhuga á að þeir skeri niður aðrar 800 milljónir?

Sigurður Viktor Úlfarsson, 17.5.2009 kl. 21:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband