Vita ráðherrar ekkert í sinn haus

Það vakti athygli mína, sú frétt að 9 ráðherrar eru með 17 aðstoðarmenn, sér til halds og trausts og eru með því að sniðganga lög um Stjórnarráðið, en þar er gert ráð fyrir að hverjum ráðherra sé heimilt að ráða sér einn aðstoðarmann.  En nú eru sumir með tvo aðstoðarmenn og einn er með þrjá, en sumir eru ekki með aðstoðarmenn.  Núverandi ríkisstjórn er ekki sú fyrsta til að sniðganga þessi lög, því þetta hefur verið gert undanfarna tvo áratugi af mörgum ríkisstjórnum.  Þessir ráðherrar hafa ekki aðeins alla þessa aðstoðarmenn.  Heldur skipa þeir ótal nefndir til að semja frumvörp ofl.  Einnig hefur hver ráðherra einkabílstjóra og þeir sinna auk akstursins ótal störfum fyrir viðkomandi ráðherra.  Á meðan öllum er ráðlagt að spara og sætta sig við lakari lífskjör en áður, þá bruðla ráðherrar með almanna fé.

Væri nú ekki betra að breyta lögunum um Stjórnarráðið á þann veg að hver ráðherra hefði einungis einn aðstoðarmann, sem ætti að duga flestum til að sinna sínum skyldum.   Það er neyðarlegt að horfa á það að verið sé að brjóta lög með hverri nýrri ríkisstjórn.  Ef ráðherra dugir ekki einn aðstoðarmaður, er hann einfaldlega ekki hæfur sem ráðherra.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þegar aðstoðarmenn eru FLEIRI en gert er ráð fyrir er það ekki merki þess að viðkomandi ráðherrar VALDI EKKI því verkefni sem þeir hafa verið valdir til?

Jóhann Elíasson, 11.9.2009 kl. 11:09

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Til hvers þurfa þeir þá alla þessa aðstoðarmenn, ef þeir get auðveldlega unnið verkin sjálfir.

Jakob Falur Kristinsson, 11.9.2009 kl. 11:17

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er eins og ég sagði áðan ráðherrarnir HAFA EKKI BURÐI til að vinna þau störf sem þeir eru valdir til.

Jóhann Elíasson, 11.9.2009 kl. 11:37

4 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Nú ert þú Jóhann farinn að snúa við hlutunum.  þú sagðir fyrst að þetta væri ekki merki um að viðkomandi ráðherrar VALDI EKKI því verki sem þeir hafa verið valdir til.  Nú segir þú að þeir HAFI EKKI BURÐI til að vinna þau verk sem þeir eru valdir til.  Ef menn hafa ekki burði til að vinna ákveðin verk þá valda þeir því ekki heldur.

Jakob Falur Kristinsson, 11.9.2009 kl. 18:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband