Þorskveiðar

NAFO (Norðvestur-Atlantshafsfiskveiðistofnunin) hefur ákveðið að leyfa aftur alþjóðlegar þorskveiðar á Flæmska hattinum eftir tíu ára bann. Ákvörðun um þetta var tekin á ársfundi NAFO sem haldinn var í Bergen í Noregi í síðustu viku.

Nú virðist vera þorskur á öllu miðum, sem ekki ætti að vera til miðað við umsagnir sérfræðinganna.  Barentshafið er yfirfullt af fiski af öllum tegundum  Meira að segja í Eystrasalti er kominn fiskur en þar átti allur fiskur á að hafa verið veiddur upp.  Aðeins á Íslandsmiðum fer fiskgengd minnkandi eða stækkar lítið að sögn Hafró.  Annað hvort er Hafró að reikna þetta svona vitlaust eða að við erum að ala upp fisk fyrir aðrar þjóðir í stórum stíl.

Í 25 ár höfum við fylgt ráðum Hafró og verið sagt að við værum að byggja upp þorskstofninn, en hann hefur bara minnkað um meira en 50% á þessu tímabili.  Nú eigum við að segja við Hafró, NEI TAKK og gera eina tilraun og tvöfalda allar aflaheimildir á Íslandsmiðum.  STRAX. Áhættan er lítil sem engin.


mbl.is Opnað fyrir þorsk á Flæmska
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Kobbi !

Ætli LÍÚ sé búið að læsa klónum í þorskkvótann á Flæmska ?

Níels A. Ársælsson., 27.9.2009 kl. 10:25

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það væri mjög trúlegt Níels.

Jakob Falur Kristinsson, 27.9.2009 kl. 10:26

3 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Þeir einir kunna að veiða og þeir einu sem eiga skip og búnað til þess.

Við vitum af hverju og hvaðan peningarnir komu sem þeir eru með á milli handana.

Mannréttindarnefnd Sameinuðu þjóðanna og sérstakur saksóknari vita það líka. .........................

Níels A. Ársælsson., 27.9.2009 kl. 10:46

4 identicon

ætli leyfilegt sé að selja þorsk veiddan á flæmska sem íslenskan þorsk.hafa ekki verkendur verið að markaðsetja og selja´"íslenska þorskinn" sem svo ómengaðan að annað eins finnst ekki annarsstaðar ?

zappa 27.9.2009 kl. 15:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband