Brandari dagsins

Ég ætla að halda mig áfram við Garðinn.  En þar var algengt að í stórflóðum að sjór gekk á land og skemmdi tún.  Oft skolaðist rauðmagi og annar smáfiskur með flóðinu á land.  Einhverju sinni gerði vont veður og sjór gekk á land við Bursthús, en þar bjuggu bræðurnir Óskar og Agnar og þegar þeir voru spurðir út í flóðið svöruðu þeir;

"Það var svo svakalegt að sjórinn gekk upp fyrir veg og svo mikið af stórþorski skolaði á land að þeir þurftu ekki að róa í marga daga á eftir svo mikill var fiskurinn."


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Rétt hjá þér að halda þig við Suðurnesin!! En aftur, Bursthús eru í Hvalsneshverfi í Sandgerðisbæ, fyrrum Miðneshrepp..Og bræðurnir bjuggu í Sandgerði til æviloka ekki langt frá Miðhúsum!! Og einmitt margar góðar sögur af þeim. Pabbi sagði mér þessa ha ha..

Kveðja.

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 26.10.2009 kl. 17:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband