Eigaskattur

Ríkisstjórnin ræðir núna hugmyndir um að leggja á eignarskatt, en skatturinn var lækkaður um helming 2002 og lagður af árið 2005. Það ár skilaði hann 3,7 milljarða tekjum í ríkissjóð.

Ætlar þessi ríkisstjórn að skattleggja hér allt til andskotans.  Það virðist vera leitað með logandi ljósum að öllu sem hægt er að skattleggja.  Er þetta ekki sama ríkisstjórnin og ætlaði að koma hér á norrænu velferðarþjóðfélagi.  Á meðan íbúðareigendur berjast við að halda sínum íbúðum, þá dettur ríkisstjórninni í hug að leggja á eignaskatt til að ganga endanlega frá fjárhag fólks. 

Er enginn með fullu viti í þessari ríkisstjórn.


mbl.is Verður eignarskattur endurvakinn?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jú jú.  Og til þess að stofna norrænt velferðasamfélag þá þarf að skattleggja allt í rot.  Almennur launamaður verður að borga hátt í 60% skatt.

Norrænt velferðakerfi er rándýrt og engum til hagsbóta nema vesalingum sem nenna ekki að sjá fyrir sjálfum sér...

Guðbjartur Þorvarðarson 17.11.2009 kl. 11:25

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Þetta alveg glatað hjá ríkisstjórinni.

Jakob Falur Kristinsson, 18.11.2009 kl. 10:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband