Bílinn fundinn

Bíll sóknarprestsins í Reykjanesbæ er fundinn en lögreglan í Reykjanesbæ lýsti eftir bílnum í fyrradag eftir að honum hafði verið stolið fyrir utan kirkju þar í bæ. Bíllinn fannst svo í Reykjavík í nótt.

Presturinn hlýtur að hafa skilið bílinn eftir ólæstan og jafnvel með lyklunum í, svo auðvelt hefur verið fyrir þjófinn að setjast inn í bílinn og aka á brott.  En nú er hann samt fundinn og presturinn getur glaður ekið sínum bíl áfram.  Vegir Drottins eru oft órannsakanlegir.


mbl.is Fundu bíl sóknarprestsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Zmago

Samkvæmt hádegisfréttum Bylgjunnar í gær, hafði þjófurinn komist inn í kirkjuna og stal bíllyklunum úr yfirhöfn sóknarprestsins.

Þá kom einnig fram í fréttinni að sóknarprestur þessi er giftur lögreglustjóranum í Reykjanesbæ, sem aftur kann að varpa ljósi á mikinn viðbúnað lögreglu til að hafa upp á bílnum.

Ég veit dæmi þess að venjulegt fólk hefur fengið þau svör hjá lögreglu, þegar það tilkynnir þjófnað á bíl að það sé ekki mannskapur til að sinna því.

Zmago, 21.11.2009 kl. 10:55

2 identicon

Enn fyndnara er að samkvæmt DV þá kann presturinn ekki boðorðin 10.. sagði þjófinn brjóta boðorð númer 7, þú skalt ekki stela... sem er ekki rétt hjá presti :)

DoctorE 21.11.2009 kl. 11:39

3 Smámynd: Valina

Rétt (Zmago), bíl sonar míns var stolið í sumar og þótt vitað væri hverjir stæðu á bakvið gerði lögreglan ekkert. Ekki sama Jón eða Séra Jón.

Valina, 21.11.2009 kl. 11:51

4 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Hvað sem kunnáttu prestsins í boðorðunum 10 líður er ljóst að þarna er í gangi mikill klíkuskapur við leitina að bílnum.

Jakob Falur Kristinsson, 22.11.2009 kl. 10:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband