Hanna Birna

Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-lista, boðar að hann muni á fundi borgarstjórnar í dag leggja fram bókun þar sem þess verði krafist að Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, víki úr embætti á meðan sterkar vísbendingar um pólitíska spillingu hjá henni séu rannsakaðar ofan í kjölinn.

Það hefur því ekki verið af ástæðulausu, sem Ólafur F. Magnússon var beðinn um læknisvottorð þegar hann tók á ný sæti í borgarstjórn eftir veikindi.  Nú held ég að sé kominn tími á að kallinn fari aftur í læknisskoðun.


mbl.is Vill að Hanna Birna víki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er ekki ráðlegra og stórmannlegra að beina spjótum að orðum Ólafs með rökum og skynsemi í stað þess að beina kastljósinu að sjúkdómi hans?

H.T. Bjarnason 1.12.2009 kl. 10:55

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það þíðir lítið að tala um rök þegar Ólafur F. Magnússon á í hlut og hvað varðar hans sjúkdóm, hefur enginn verið duglegri að auglýsa hann en Ólafur sjálfur.

Jakob Falur Kristinsson, 1.12.2009 kl. 10:59

3 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Ólafur F þarf ekkert læknisvottorð - framkoma hans undanfarna mánuði í borgarstjórn talar skýrar en nokkurt vottorð.

Árásin á Hönnu Birnu er engum samboðin sem hefur snefil af sjálfsvirðingu - en væntanlega veit Ólafur F. hvar hans sjálfsvirðing liggur ef einhver er.

Þetta kosningaupphlaup og önnur í sama dúr munu halda áfram að koma frá honum og illt til þess að vita að hann skuli halda borgarstjórn í gíslingu í skjóli lýðræðis. Sjá fundargerðir.

Ólafur Ingi Hrólfsson, 1.12.2009 kl. 11:21

4 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Landsbankinn dældi peningum í marga frambjóðendur í Reykjavík 2006 og kostaði prófkjörsbaráttu einstakra frambjóðenda í t.d. í Samfylkingunni.

Sigurður Þórðarson, 2.12.2009 kl. 05:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband