Nýr frændi

Samkvæmt þessari frétt millilenti Bill Clinton fyrrum Bandaríkjaforseti á Íslandi í morgun á leið sinni til Færeyja en þangað kom hann um hádegi í dag.  Clinton mun flytja ræðu á ráðstefnu í Færeyjum í dag, en við komuna þangað sagði Clinton að hann hefði alltaf fundið til skyldleika með Færeyingum, þar sem hann væri af írskum ættum og fyrstu landnámsmenn á eyjunum hefðu verið Írar.

Það gefur auga leið að ef Clinton er skyldur Færeyingum af þessari ástæðu þá hlýtur hann að líta á íslendinga sömu augum.  Því margir af okkar landnámsmönnum munu hafa haft viðkomu á Írlandi og tekið með sér til Íslands margar írskar konur og menn.  Nú getur allt rauðhært fólk á Íslandi farið að tala um Clinton frænda.  Því miður er ég ekki einn í þeim hópi og verð að láta mér nægja þá frændur sem ég átti fyrir og á því ekki von á neinum boðum í Hvíta húsið ef eiginkona Clintons verður næsti forseti Bandaríkjanna, en rauðhærða fólkið getur aftur á móti vonað að fá slík boð þegar Clinton hjónin halda stór fjölskyldumót.  Af því að Lúðvík Gissurarson hefur með málaferlum getað fengið það sannað að hann sé sonur Hermanns Jónassonar, ætti Steingrímur Hermannsson kannski að athuga hvort hann sé ekki mjög skyldur Clinton, því Steingrímur er jú rauðhærður ekki satt?


mbl.is Bill Clinton segist finna til skyldleika með Færeyingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

hehe þú ert einum of skemtilegur penni ;) ávallt gaman að kíkja á bloggið hjá þér og geri ég það mjög oft þó er þetta merk stund því í dag er fyrsta skiptið sem að ég kvitta fyrir mig . Takk fyrir ;)

kv Valdi frændi þinn ...

Valdimar Kr. Kristjánsson 1.10.2007 kl. 21:42

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Þakka þér fyrir þetta Valdi minn, en það á sama við um þig og mig að við getum ekki kallað Clinton frænda.

Jakob Falur Kristinsson, 2.10.2007 kl. 14:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband