Spillingin

 

Fundur borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins er að hefjast í ráðhúsi Reykjavíkurborgar.  Að sögn blaðamanns Morgunblaðsins er ekki vitað hve lengi  fundurinn muni standa en mikill fjöldi fréttamanna er staddur í ráðhúsinu.  á fundinum á að reyna að ná samkomulagi meðal borgarfulltrúa flokksins vegna þeirra deilna sem skapast hafa í kringum sameiningu Reykjavík Energy Invest og Geysir Green Energy en REI er dótturfyrirtæki Orkuveitunnar.

Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi sagði við fréttamann mbl.is að fundurinn legðist vel í sig "Þetta verður vonandi allt í lagi" sagði Gísli Marteinn.

Það er alveg ljóst hver verður niðurstaða þessa fundar, því löngu er búið að gefa út fyrirmæli frá Valhöll höfuðstöðvum Sjálfstæðisflokksins, að sjálfstæðismenn eiga að vera samþykkir því sem borgarstjóri meirihluta borgarstjórnar og Björn Ingi Hrafnsson eru búnir að gera, en vera samt á móti.  Þetta kom meðal annars skýrt fram í hádegisviðtali á Stöð 2 í dag, þegar rætt var við Árna Sigfússon bæjarstjóra Reykjanesbæjar.  En hvort íbúar Reykjavíkur verða sáttir við niðurstöðu þessa fundar er svo annað mál og mun ekki koma endanlega í ljós fyrr en í kosningum 2010.  En það er sama hvað reynt er mikið að breiða yfir þennan skít þá mun lyktin ekki hverfa strax.


mbl.is Fundur borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins að hefjast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband