Vinnumarkaðurinn

Ástand á vinnumarkaði er gott um þessar mundir, atvinnuþátttaka mikil og atvinnuleysi með minnsta móti, segir á vefsíðu Alþýðusambands Íslands.

Einhvern veginn finnst mér fyrirsögin á fréttinni ekki vera í neinu samræmi við innihaldið.  Er ekki annars alltaf mikill óvissa á vinnumarkaði og allt að fara fjandans til, þegar kemur að gerð kjarasamninga.  Þá er alveg öruggt að þjóðarbúið þolir ekki eitt né neitt, að hækka einhvern í launum um eina krónu gæti kolvarpað öllu hagkerfinu og sent lífsgæðin út í hafsauga ef ekki lengra.


mbl.is Óvissar horfur á vinnumarkaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já það er merkilegur andskoti hvað þjóðarbúið verður alltaf fátækt þegar líður að þvi að hækka laun þeirra sem minnst fá í launaumslagið.  Þá er það ekki spurning um feita eftirlaunasamninga eða biðlaun.  Nei það er bara á æðstu stöðum sem alltaf er til nóg fjármagn.  En það er svo sem von, ekki kvartar almenningur nóg, og gefur þessu fólki alltaf umboð sitt aftur og aftur og aftur og aftur.  Von að maður verði pirraður á öllu þessu jaaaaarrrmmi.   

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.11.2007 kl. 10:38

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Já það er alveg rétt hjá þée Ásthildur, fólk kýs aftur og aftur yfir sig sömu vitleysuna og er svo að kvarta.

Jakob Falur Kristinsson, 26.11.2007 kl. 17:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband