Geir

Geir H. Haarde.Geir H. Haarde, forsætisráðherra, hefur verið boðið að flytja fyrirlestur á jólafundi sænska viðskiptaráðsins í Stokkhólmi í morgun. Mun Geir fjalla þar um hvernig hægt sé að búa til hagkerfi í fremstu röð í heiminum.

Hvað getur hann kennt Svíum?  Væri ekki nær fyrir Geir að nota sína hæfileika til að hafa stjórn á okkar eigin efnahagsmálum sem allt er í eintómri vitleysu.  Er hann kannski að kenna Svíum stjórnleysi.


mbl.is Geir fræðir Svía um íslensk efnahagsmál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er alveg með ólíkindum hvað maðurinn getur verið hrokafullur, vitandi það að árangurinn í efnahagsmálum er minni en enginn.  Það sem gerir þennan árangur síðustu 12 árin, ef árangur skyldi kalla, er að YTRI AÐSTÆÐUR HAFA VERIÐ ÍSLENSKU EFNAHAGSLÍFI AFAR HAGSTÆÐAR.  Ég hef skrifað margar greinar um þetta á bloggið mitt og meðal annars skrifaði ég nýlega um frétt sem var á mbl.is http://johanneliasson.blog.is/blog/johanneliasson/entry/370645/ ég vil hvetja þig til þess að lesa megnið af þessum greinum.

Jóhann Elíasson, 28.11.2007 kl. 12:23

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Já Jóhannes, ég er búinn að lesa þetta og allt það bull og kjaftæði sem þú fékkst í athugasemdum.  Okkar ytri aðstæður hafa verið svo hagstæðar að það hefði þurft nánast snillinga til að geta klúðrað því og kannski af þeim ástæðum er Geir H.Haarde, snillingur en engu öðru.  Snillingur í Vitleysu.

Jakob Falur Kristinsson, 28.11.2007 kl. 15:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband