Hlutabréf

Hlutabréf hafa haldið áfram að lækka í verði í viðskiptum í Kauphöll Íslands í morgun og hefur Úrvalsvísitalan lækkað um 0,42%. Bréf SPRON hafa lækkað um 1,7%, Exista um 1,1% og FL Group um 0,7%.
Mikið er maður nú heppinn að hafa aldrei haft efni á að kaupa hlutabréf og getur þar af leiðandi verið áhyggjulaus um hvert gengi þeirra er á hverjum tíma.
mbl.is Hlutabréf halda áfram að lækka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Þú segir nokkuð. En kannski kemur að því að geta lagt e-ð fyrir og nú fara að renna uppspennandi tímar með ýmsum góðum möguleikum að kaupa hlutabréf á góðu verði. Eða halda þau áfram að falla í verði? Þá er um að gera að bíða og doka.

Guðjón Sigþór Jensson, 4.1.2008 kl. 18:50

2 identicon

Ég mundi bíða og doka...... engin spurning allavega til sumars... bankar eru að fara birta ársuppgjör seinnipartin í mánuðinum og ekki er búist við glæsilegum tölum, og þá sérstaklega í BNA..............

gfs 4.1.2008 kl. 22:54

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ef maður ætti einhver hlutabréf,
þá væri maður talin svo ríkur að maður fengi ekki örorkubætur.
Nei bara smá djók.
            Kveðja og gleðilegt nýtt ár Jakob.
                                 Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 5.1.2008 kl. 09:19

4 Smámynd: Þórir Kjartansson

Blöðrur springa alltaf á endanum, þegar of miklu af lofti er blásið í þær.

Þórir Kjartansson, 5.1.2008 kl. 20:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband