Glitnir

Hann byrjaði með stæl nýi stjórnarformaðurinn hjá Glitnir, hann Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja hf. á Akureyri.  Hann flutti eina tillögu á ný afstöðnum aðalfundi sem var um að lækka laun stjórnar og stjórnarformanns og boðaði aðhald í rekstri bankans.  Þorsteinn Már er þekktur fyrir að sýna mikið aðhald í rekstri sinna fyrirtækja og er mjög ákveðinn maður má jafnvel kalla hann frekjuhund, en hann er jarðbundin og veit á hverju þessi þjóð er orðin eins vel sett og hún er í dag.   Það er nokkuð víst er að hann á eftir að láta að sér kveða í rekstri þessa banka og skera á allt bruðl og snobb.  Hann er sú manngerð sem lætur verkin tala, ekki eilíf fundarhöld um ekkert, hann á eftir að hrista rækilega upp í íslensku fjármálalífi. 

Enda heyrist nú úr fjármálalífinu að margir séu farnir að skjálfa af hræðslu, því það sem gert verður í Glitnir mun síðan smitast inn hjá öðrum fjármálastofnunum.  Háskólastrákarnir í fínu jakkafötunum, með allar klukkurnar á veggjunum, fínu skjalatöskurnar og á ofurlaunum munu víst vera verulega skelkaðir og vita að nú verða þeir að fara að vinna fyrir þeim launum sem Þorsteini þykir hæfileg miðað við vinnuframlag.

Þorsteinn Már Baldvinsson hefur oft verið umdeildur maður og oft hef ég gagnrýnt hann.  En i þessu máli á hann mikið hrós skilið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já Guð láti gott á vita.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.2.2008 kl. 11:20

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Hann gerir það.

Jakob Falur Kristinsson, 21.2.2008 kl. 11:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband