Breyttar aðstæður

Stöðvun loðnuvertíðarinnar er mikið áfall fyrir marga staði... Geir H. Haarde, forsætisráðherra, segir að almennar mótvægisaðgerðir vegna þorskaflaniðurskurðar séu að koma til framkvæmda á þessu ári. Ljóst sé, að ef engar frekari loðnuveiðar verði eins og nú er útlit fyrir, verði stjórnvöld að taka það inn í myndina enda væru gjörbreyttar aðstæður víða.

Já aðstæður hafa heldur betur breyst nú þegar loðnuveiðar eru stöðvaðar, reyndar tímabundið og vonandi að hún skili sér seinna.  En sjávarútvegsráðherra gat ekki gert neitt annað í stöðunni í dag.  Því hvaða vit er í því að moka upp smáloðnu og þorskseiðum við þessar aðstæður og setja í bræðslu.  Bæði værum við að ganga endanlega frá loðnustofninum og auk þess að takmarka verulega nýliðun í þorskstofninum.  Hvað ætli margir einstakir fiskar séu í nokkur hundruð tonnum af þorskseiðum.  Það eru örugglega nokkur hundruð milljónir fiska og þótt ekki kæmust upp nema 1-2% af þessum seiðum og næðu 4-5 kílóa þyngd væri verið að bætast við þorskstofninn nokkur hundruð þúsund tonn.  Er ekki komin skýringin á lélegri nýliðun hjá þorskinum ár eftir ár að seiðunum hefur verið landað í bræðslu sem loðnu.

Í dag er fallandi verð á mjöli og lýsi svo að ekkert vit er í því að vera að veiða hana til bræðslu, reyndar segja loðnusjómenn að það sé til nóg af loðnu í hafinu, leitarskipin hafi bara ekki verið á réttum svæðum.  Þetta er líka sagt um þorskinn, en við höfum ákveðnar veiðireglur og eftir þeim verður að fara hvort sem um er að ræða þorsk eða loðnu.  Eins og staðan er í dag gat sjávarútvegsráðherra ekki annað en stöðvað veiðarnar.  Telja loðnusjómenn sig eitthvað meira metna en þá sjómenn sem veiða þorsk, það mætti halda það miðað við yfirlýsingar margra þeirra.


mbl.is Gerbreyttar aðstæður víða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já það verður fróðlegt að fylgjast með framhaldinu.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.2.2008 kl. 19:22

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég er nú bara hreinskilinn Ásthildur, og segi því að ég sé neitt sorgmæddur yfir þessum fréttum.  Í stað þess að koma einstökum byggðum til góða, þá kemur það allri landsbyggðinni til góða ef engin koðna verður veidd meir á þessari vertíð, því þá eru miklar líkur á að þorskstofninn nái sér betur á skrið og eflist svo mikið að möguleikar eru á auknum kvóta þar í sumar.

Jakob Falur Kristinsson, 22.2.2008 kl. 05:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband