Umhverfissóðar

Meðfylgjandi er mynd af Tinna þar sem sést í 15 cm. langan... "Við viljum benda veiðimönnum á að ganga vel um og henda ekki önglum eða girni frá sér og ganga vel frá veiðarfærum eftir veiðiferðir," segir Sif Traustadóttir, dýralæknir hjá Dýralæknamiðstöðinni í Grafarholti. Á rúmri viku hafa tveir hundar gengist undir skurðaðgerð á Dýralæknamiðstöðinni til þess að fjarlægja öngul og girni úr innyflum þeirra.

Þetta er mál sem verður að laga strax og má t.d. benda á sjómenn en þeir henda aldrei önglum eða girni í hafið.  Þannig að þetta hljóta að vera laxveiðimenn.


mbl.is „Stórhættulegt að kasta önglum og girni"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Fólk þarf sko að passa sig, það er næsta víst eins og góður maður sagði eitt sinn  WooHoo 

Ásdís Sigurðardóttir, 30.7.2008 kl. 14:21

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Sammála Ásdís

Jakob Falur Kristinsson, 30.7.2008 kl. 15:13

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Sem betur fer eru það MJÖG fáir "alvöru" veiðimenn sem gera þetta, frekar að þeir sem skreppa í útilegu og taka veiðistöngina "með" en það er alveg sama hverjir þetta eru sem eru þarna að verki VERKNAÐURINN ER JAFN SLÆMUR HVER SEM Á Í HLUT.

Jóhann Elíasson, 30.7.2008 kl. 16:44

4 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég hef farið í laxveiði og veit alveg hvernig sumir haga sér þar.  Margir eru blindfullir við veiðarnar og láta leiðsögumennina um að veiða fyrir sig.  Ég gæti trúað að slíkir menn ættu þetta til.

Jakob Falur Kristinsson, 31.7.2008 kl. 06:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband