Íslendingur fær Óskarinn

Þá er einn meirihlutinn í viðbót komin í Reykjavík.  Verðandi borgarstjóri, Hanna Birna fékk Óskarinn (Óskar Bergsson) og er því eini íslendingurinn sem fær hann.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

 Awards Ég hef tvisvar fengið Óskarinn. Fyrst þegar ég kynntist manninum mínum heitnum, hann hét Óskar og var einmitt sagti við mig þegar við byrjuðum saman að ég hefði fengið Óskarinn. Síðan eftir lát mannsins míns fæddist okkur sonur sem ég skírði Óskar þannig að þá fékk ég Óskarinn í annað sinn.  Þú gast náttl. ekki vitað þetta allt saman, en semsagt við Hanna Birna höfum báðar fengið Óskarinn og reyndar fleiri sem ég þekki.  Ég hefði ekki viljað skipta á Óskurum en við skulum vona að hennar dugi vel í samstarfinu.

Ásdís Sigurðardóttir, 19.8.2008 kl. 12:20

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Já Ásdís það þykir öllum vænt um Óskarinn sinn, en hvort Hönnu Birnu finnst það um sinn Óskar efast ég um og kæmi ekki á óvart að eftir nokkra mánuði vildi hún losna við hann aftur.  Ég hlakka til að sjá viðbrögð sjálfstæðismanna þegar Alfreð Þorsteinsson verður aftur kominn til valda í Orkuveitunni.

Jakob Falur Kristinsson, 19.8.2008 kl. 16:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband