Uppsagnir

Verslun Bauhaus á ÍslandiNánast öllum starfsmönnum Bauhaus á Íslandi hefur verið sagt upp störfum en að sögn Halldórs Óskars Sigurðssonar, framkvæmdastjóra Bauhaus á Íslandi, liggur ekki nákvæmlega fyrir hversu margir munu missa vinnuna. Sautján manns höfðu verið ráðnir í stjórnunarstöður hjá fyrirtækinu en alls sóttu 650 manns um þær stöður.

Þetta getur nú ekki verið alvarlegt því þetta fyrirtæki hefur ekki enn hafið neina starfsemi hér á landi.  Reikuðu menn virkilega með því að halda sínum störfum hjá fyrirtæki sem starfar ekki neitt.  Þetta fyrirtæki ætlaði að reka byggingarvöruverslun en til að svo geti verið þurfa að vera einhverjir kaupendur að slíkum vörum.


mbl.is Flestum starfsmönnum Bauhaus sagt upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Villi Asgeirsson

Þetta fólk var komið í vinnu. Þetta fólk er nú án atvinnu og þarf því að leita að nýrri. Það á líka við um alla hina sem eru að missa vinnuna. Íslendingar þekkja ekki atvinnuleysi. Ég vona að þannig verði spilað úr stöðunni að þeir þurfi ekki að kynnast því, en ég efast um það. Á meðan sama fólkið situr sem fastast í stjórnarstöðum, gerist ekkert og allt fer í ræsið.

Villi Asgeirsson, 22.10.2008 kl. 08:42

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það er rétt að þetta fólk var búið að ráða í vinnu en hver var vinnan?  Hún var enginn því verslunin hafði ekki tekið til starfa.  Atvinnulaust fólk á alla mína samúð.  En því miður held ég að með núverandi ríkisstjórn verði hér fjölda atvinnuleysi.

Jakob Falur Kristinsson, 22.10.2008 kl. 11:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband