Tími til kominn

Ég hef ekki verið duglegur að skrifa á þessa síðu lengi.  Ástæðan er sú að eftir Jól og áramót fékk ég svo mikið þunglyndiskast (en ég er þunglyndissjúklingur).  En með aðstoð geðlæknis, sem ég fer reglulega til tókst að bæta úr því og líður mér miklu betur núna.  Þetta gekk svo langt að ég fór í matinn sem hér er og síðan beint í rúmið og lá þar allan daginn, þar til sjónvarpsdagskráin byrjaði á kvöldin.  Þegar ég ætlaði síðan að fara að skrifa aftur bilaði tölvan og ég hafði ekki áhuga á að láta gera við hana fyrr en í fyrradag.  Ég verð að viðurkenna að mér hundleiðist hér í Sandgerði og hef tekið þá ákvörðun að selja íbúðina hér og flytja vestur á Bíldudal aftur í vor.  En hvað varðar skrifin þá ætla ég nú að bæta verulega úr því.  Já og gleðilegt nýtt ár allir mínir bloggvinir nær og fjær.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vertu velkominn aftur. Það er gleðiefni að þú skulir ætla að flytja vestur aftur því það eru sveitarstjórnarkosningar á næsta ári og þá þurfum við á öllu okkar fólki að halda.

Eyleifur 20.2.2009 kl. 15:23

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Þakka þér fyrir Eyleifur, það varð mikill léttir hjá mér þegar ég var búinn að taka þessa ákvörðun og tryggja mér íbúð á Bíldudal og að sjálfsögðu helli ég mér á fullu í sveitarstjórnarmálin.

Jakob Falur Kristinsson, 20.2.2009 kl. 15:47

3 identicon

Gott að þú ert kominn í gegnum þunglyndiskastið. Vertu duglegur að skrifa, þú ert skemmtilegur penni!!

Maddý 21.2.2009 kl. 17:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband