Akstur

Mynd 492095 Um alllangt skeið hefur lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fylgst með og mælt hraðakstur í Hvalfjarðargöngum. Þar hefur átt sér stað að dregið hefur úr hraðakstri og hlutfall brotlegra ökumanna er nú yfirleitt um 1%. Nokkra athygli vekur að ökumenn virðast flýta sér mikið á sunnudögum en þá er meðalhraði brotlegra ökumanna hærri en aðra daga, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

Þetta er alveg stórmerkilegt, frídagur hjá flestum, nægur tími og enginn ástæða til að flýta sér.


mbl.is Hraðast ekið á sunnudögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er nú dáldið villandi hjá þeim að klippa svona neðan af súluritinu. Á  mánudögum þegar harðinn er minnstur er meðalhraði brotlegra 82.3 km/klst og á sunnudögum þegar hann er mestur 83.9 km/klst. Þarna munar aðeins 1.6 km/klst eða tæpum 2% af mesta hraðanum sem er langt undir skekkjumörkum. Þannig að þetta súlurit segir ekkert.

Þetta sama trix nota bankarnir oft til að blekkja með auglýsingum.

Axel 4.3.2009 kl. 17:59

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Já þetta er bara leikur að tölum og engin vísindi.

Jakob Falur Kristinsson, 4.3.2009 kl. 23:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband