Hreindýr

„Það er dálítið mikið eftir,“ sagði Jóhann G. Gunnarsson, starfsmaður veiðistjórnunarsviðs Umhverfisstofnunar á Egilsstöðum, um stöðu hreindýraveiðanna. Búið er að veiða 754 hreindýr af þeim 1.333 sem fella má í haust. Staðan hefur þó batnað á flestum svæðum. Veiðitímanum lýkur 15. september.

Ég held að veiðimenn geti alveg gleymt því að það náist að veiða upp í allan veiðikvótann, þar sem aðeins eru 16 dagar eftir af veiðitímabilinu en óveidd dýr eru tæpur helmingur af veiðikvótanum.  En væri ekki alveg óætt að framlengja veiðitímann um t.d. 1 mánuð svo allur veiðikvótinn yrði veiddur.


mbl.is Betur gengur að veiða hreindýr
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Fyrir hreindýrin eða græðgina?

Sigurberg 30.8.2009 kl. 16:20

2 identicon

Það er ekki gott að framlengja kvótann fyrir tarfana því eftir um það  bil miðjan sept verða þeir braðgverri, nánast óætir. Varðandi kvígurnar þá vinna þær bara þennan slag og baula hamingjusamlega einn  vetur til.

Björn 30.8.2009 kl. 17:22

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég hreinlega vissi þetta ekki, enda lítið fróður um hreindýr.

Jakob Falur Kristinsson, 31.8.2009 kl. 09:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband