Handtaka

Ökumaður var tekinn síðdegis í gær grunaður um ölvun við akstur í Grímsnesi. Hann veitti mótspyrnu við handtöku og fékk að gista fangageymslu á Selfossi í nótt. Manninum var sleppt í morgun. Málið er enn í rannsókn.

Það er nú bara mannlegt eðli að veita mótspyrnu við handtöku, því auðvitað vill enginn láta handtaka sig.  En það er búið að sleppa manninum, svo hann getu haldið áfram að aka ölvaður ef hann vill.


mbl.is Veitti mótspyrnu við handtöku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Finnur Bárðarson

Góður :)

Finnur Bárðarson, 30.8.2009 kl. 16:23

2 identicon

Enn ef þú vetir mótspyrnu þá geturu fengið marblett og þá þíðir lítið að fara að væla um lögregluofbeldi!

óli 30.8.2009 kl. 16:42

3 Smámynd: Halldór Jóhannsson

Já og geri það:)

Halldór Jóhannsson, 30.8.2009 kl. 17:05

4 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Þegar fyrir liggur annað hvort játning eða að rannsókn sé lokið og engin hætta lengur á að grunaður spilli sönnunargögnum eða reyni að hafa áhrif á möguleg vitni, þá er engin þörf á að halda honum lengur. Ef viðkomandi brýtur aftur lög þá er það nýtt mál á borði lögreglunnar.

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 30.8.2009 kl. 18:15

5 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Þegar um er að ræða síbrota menn með langan sakaferil að baki er hæpið að sleppa þeim lausum.  Þótt viðkomandi mál sé upplýst og engin hætta á að þeir grunuðu spilli sönnunargögnum.  Þess eru dæmi um að dæmdir morðingjar gangi lausir.  Allt er þetta vegna þess að öll fangelsi landsins eru yfirfull og ekki pláss fyrir gæsluvarðhaldsfanga og lítið bólar á úrbótum í þeim efnum.

Jakob Falur Kristinsson, 31.8.2009 kl. 10:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband