Viljayfirlýsing

Kristján L. Möller samgönguráðherra á von á að undirrituð verði viljayfirlýsing um byggingu samgöngumiðstöðvar í Reykjavík í þessari viku. Ef leyft verði að reisa hana við Reykjavíkurflugvöll geti framkvæmdir hafist á þessu ári.

Það var kominn tími til en þá á eftir að koma í ljós hvað Reykjavíkurborg gerir.  Ætli málið tefjist ekki þar í nokkra mánuði.  Þessi framkvæmd er mjög brýn því núverandi aðstaða fyrir flugfarþega á Reykjavíkurflugvelli er fyrir neðan allar hellur.  Gamlir herbraggar að hruni komnir.


mbl.is Viljayfrlýsing um samgöngumiðstöð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afsökunarbeiðni

 Breiðavík.   Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, bað í dag fyrrum vistmenn í Breiðavíkurheimilinu og fjölskyldur þeirra afsökunar fyrir hönd íslenskra stjórnvalda og íslensku þjóðarinnar á þeirri ómannúðlegu meðferð, sem vistmennirnir voru látnir sæta.

Alltaf kemur hún Jóhanna á óvart.  Þetta hefði Geir H. Haarde aldrei getað gert.  En átti ekki að greiða þessum mönnum einhverjar skaðabætur?  Það var alla veganna rætt á sínum tíma.


mbl.is Afsökunarbeiðni vegna Breiðavíkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Krónan

Mynd 484511 Gengi krónunnar hefur veikst um 0,54% í morgun og stendur gengisvísitalan í 187,41 stigi en lokagildi hennar í gær var 186,40 stig. Bandaríkjadalur er í 111,34 krónum, pundið 153,46 krónur, evran 142,45 krónur og danska krónan 19,12 krónur, samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Íslandsbanka.

Þetta gengur ekki lengur með þessa handónýtu krónu.  Við verðum að ganga í ESB og taka upp alvöru gjaldmiðil sem væri þá Evran.  En landsfundur Sjálfstæðisflokksins á eftir að fjalla um Evrópumálin svo hans afstaða verður ekki ljós fyrr en eftir þann fund.


mbl.is Krónan veikist um 0,54%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þingstörfin

Jóhanna Sigurðardóttir. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur boðað formenn stjórnmálaflokka á Alþingi á fund nú fyrir hádegi til að ræða um þingstörfin og hvaða mál ríkisstjórnin leggur áherslu á að afgreiða áður en þing verður rofið.

Ég held nú að Sjálfstæðismenn ættu nú að hætta að leika óþekka krakka og stuðla að því að hægt verði að klára þau mál sem verður að klára fyrir kosningar.  Þá er hægt að rjúfa þing og byrja alvöru kosningabaráttu.


mbl.is Rætt um þingstörfin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Morð

Syrgjendur komu saman við Albertville skólann í Winnenden í... Birtar hafa verið myndir af piltinum sem stóð á bak við fjöldamorðin í skólanum í Þýskalandi í gær. Myndirnar eru teknar á farsíma skömmu áður en hann skaut sjálfan sig eftir að hafa verið króaður af af lögreglu. Þetta kemur fram á fréttavef Sky.

Þetta er nú meiri klikkunin að drepa fjölda manns og sjálfan sig á eftir vegna ástarsorgar.  Taldi þessi brjálæðingur sig fá kærustuna aftur ef hann dræpi nógu margt fólk.


mbl.is Byssumaðurinn: Eruð þið nú öll dáin?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lækkun á eldsneyti

Mynd 471034 Bensínorkan lækkar í dag bensín um 2 krónur og díesel um 2,6 krónur. Almennt verð á bensíni verður þá 139,70 krónur og almennt verð á díesel 149,90 lítrinn. Þrjú olíufélög hafa því tilkynnt um verðlækkun á eldsneyti í dag.

Eru þeir hætti að fylgjast með hjá Olíufélögunum?  Eð eitthvað ruglaðir?  Því í gær var frétt um hækkun á heimsmarkaðsverði á olíu.  Samkvæmt venju hefðu nú flest félögin stokkið á þetta og hækkað verðið, en þá kemur lækkun.  Annars eru vinnubröð þessara félaga við verðlagningu, flestum óskiljanleg.


mbl.is Fleiri boða eldsneytisverðlækkanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar eru peningarnir?

Þessari spurningu velta margir fyrir sér þessa dagana og enn freka eftir fall Straums-Burðarás hf.  Svo bætist gjaldþrot Baugs Group við.  Margir halda því fram að útrásarvíkingarnir hafi farið með mikla peninga úr landi og eigi þar digra sjóði.

Staðreyndin er sú að þessir menn áttu aldrei neina peninga.  Öll útrásin var framkvæmd með lánum og mest svokölluðum kúlulánum, sem eru lán til nokkurra ár og bara einum gjaldaga.  Þegar lán kom á gjaldaga var bara tekið nýtt lán til að borga það eldra.  Trúir því nokkur að eigendur Baugs Groups hafi látið það félag fara í gjaldþrot ef þeir eiga marga milljarð erlendis.  Það sama gildir um Straum-Burðarás.  Það sem varð þeim banka að falli var að hann átti ekki nægjanlegt lausafé til að greiða af láni sem var komið á gjalddaga og hvergi hægt að fá nýtt lán.  Þessi skortur á lausafé var vegna þess að lífeyrissjóðirnir, sem áttu inni í bankanum nokkra milljarða tóku þá peninga út fyrir stuttu síðan.

Það er sama hvað mörgum steinum verður velt við til að reyna að finna þessa miklu peninga sem eiga að vera geymdir erlendis, þá mun ekkert finnast.  Því það voru aldrei neinir peningar til, þetta var bara spilaborg sem hrundi.

Í íslensku útrásinni voru aldrei neinir peningar til og þeir sem voru kallaðir milljarðamæringar áttu aldrei neitt.


Andóf Sjálfstæðisflokksins

Undafarna daga hefur Sjálfstæðisflokkurinn verið með málþóf á Alþingi til að hindra að frumvarpið um breytingu á stjórnarskránni verði afgreitt.  En það mikilvægasta í þeirri breytingu er að setja í stjórnarskránna að allar auðlyndir Íslands verði sameign þjóðarinnar.  Þeir halda sig vera að bjarga Sægreyfunum, en það er hinn mesti misskilningur því núna er mikil hætta á að erlendir aðilar eignist allan aflakvóta á Íslandsmiðum.  Því mikið af aflakvótanum er veðsettur erlendum bönkum og það kemur að því að þeir ganga að sínum veðum.  Ef þetta ákvæði fer í stjórnarskránna geta þeir gengið að sínum veðum, en þá fá þeir ekki eiga kvótann og verða að selja hann aftur til Íslendinga.  Þetta er eina vörnin sem við höfum til að missa ekki yfirráð yfir okkar fiskimiðum.  Nóg er nú vitleysan fyrir í þessu kvótakerfi.

Það tólst að lokum

Stefán Hilmarsson, aðstoðarforstjóri Baugs, og Ragnar H....Fari Baugur Group í gjaldþrot flytjast öll réttindi og skyldur félagsins til þrotabúsins. Því er ekki rétt að mati Skilanefndar Glitnis að halda því fram að Landsbankinn geti tapað sjö milljörðum úrskurði Héraðsdómur Reykjavíkur í dag að Baugur fari í gjaldþrotameðferð.

Mikið geta þeir Sjálfstæðismenn vera ánægðir núna þegar loksins tekst að gera Baug Group, gjaldþrota en það hafa þeir reynt í mörg ár.


mbl.is Gjaldþrot Baugs breytir engu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Seðlabankinn

Seðlabanki Íslands. Seðlabanki Íslands boðar til fundar með blaða- og fréttamönnum í dag kl. 14 í fundarsalnum Sölvhóli, Seðlabanka Íslands. Á fundinum fer fram kynning á efni skýrslu er varðar áhrif fjármálakreppu á efnahag heimila. Um bráðabirgðaniðurstöður er að ræða.

þAÐ ER ÞÓ EITTHVAÐ LÍFSMARK HJÁ BANKANUM EFTIR AÐ SÁ NORSKI TÓK VIÐ.


mbl.is Seðlabankinn boðar blaðamannafund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband