Bloggfærslur mánaðarins, júní 2008

Fagra Ísland

Þetta var slagorð Samfylkingar fyrir síðustu kosningar og átti að standa fyrir því að flokkurinn vildi setja stopp á alla stóriðju og virkjanir og hugsa um náttúruvernd.  En hvað skeður?  Umhverfisráðherra segist vera á móti fleiri álverum á sama tíma og flokksbróðir hennar Björgvin G. Sigurðsson tekur skóflustungu að nýju álveri í Helguvík og iðnaðarráðherra Össur Skarphéðinsson, gefur út leyfi fyrir nýju álveri á Bakka við Húsavík.  Þegar formaður flokksins er spurð um þetta er alltaf sama svarið  "Samfylkingin heldur sig við stefnuna um Fagra Ísland og það sem er verið að gera nú rúmast vel innan þeirri stefnu".  Hver skilur þetta?  Ekki ég a.m.k.

Núna er olíuverð í hæðstu hæðum og fer hækkandi og samkvæmt öllum lögmálum markaðarins fylgja aðrir orkugjafar eftir.  Þess vegna sitjum við Íslendingar á gullnámu sem er jarðhitinn og fallvötnin.  Þess vegna er brjálæði að vera núna að gera nýja raforkusamninga á lágu verði langt fram í tímann eins og á sér stað gagnvart álverunum.  Álver skapar vissulega gjaldeyristekjur en þessi iðnaður þarf líka að kaupa nær allt sem þarf til framleiðslunnar erlendis frá og til þess þarf gjaldeyri og ef dæmið er reiknað til enda er nettó gjaldeyrissköpun miklu minni en t.d. sjávarútvegs og ferðaþjónustu.  Við eigum að flytja orkuna út í öðru formi en áli og þess vegna eigum við frekar að efla þær atvinnugreinar sem skapa mestar gjaldeyristekjur.


Afmæli

Sænskur drengur hefur valdið uppnámi þar í landi með því að bjóða ekki tveim skólabræðrum sínum í átta ára afmælið sitt. Hefur skólinn sem drengirnir ganga í sakað afmælisbarnið um að brjótta rétt á hinum tveim með því að skilja þá útundan. Hefur skólinn farið með málið fyrir sænska þingið.

Er ekki allt í lagi með þetta fólk.  Það er furðulegt að sænska þingið skuli ætla að fjall um svona rugl, þein haf greinilega ekki mikið að gera þingmennirnir í Svíþjó fyrst þeir hafa tíms í svona rugl.  Verða kannski sett lög í Svíðþjóð um barna-afmæli.


mbl.is Barnaafmæli veldur uppnámi í Svíþjóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aumingja Sjálfstæðisflokkurinn

Nú virðist vera komið í ljós að Sjálfstæðisflokkurinn getur ekki verið í ríkisstjórn nema með flokki sem hann getur traðkað á og farið með eins og þeim sýnist.  Allt fram að þessu hefur samstarfsflokkur Sjálfstæðisflokks í ríkisstjórn fengið á sig áföllin ef mistök hafa verið gerð og fylgi hrunið af viðkomandi flokki á meðan Sjálfstæðisflokkurinn eykur sitt fylgi.  Þetta skeði í Viðreisnarstjórninni þar sem engu mátti muna að Alþýðuflokkurinn þurrkaðist út og síðan aftur í samstarfi við Framsókn 1995-2007, þar sem fylgið hrundi af Framsókn og litlu munaði að hann næði ekki manni á þing.  Nú sýna skoðanakannanir að fylgi Sjálfstæðisflokks minnkar stöðugt á meðan samstarfsflokkurinn Samfylkingin bætir stöðugt við sig og á landsvísu eru þessir flokkar orðnir nánast jafn stórir og í Reykjavík er staðan þannig að ef kosið yrði núna þá fengi Samfylkingin hreinan meirihluta í borginni.

Hvað þessu veldur veit ég ekki, en Sjálfstæðismenn hljóta að hafa af þessu miklar áhyggjur.  Það virðist vera að flokkurinn geti ekki verið í ríkisstjórn nema geta alltaf valtað yfir samstarfsflokkinn og það er einmitt sem honum tekst ekki í dag.  Þótt ég sé ekki alltof hrifin af þessari ríkisstjórn verð ég að viðurkenna að  það er af hinu góða að komin sé flokkur sem getur skákað Sjálfstæðisflokknum.  Það er ekki eðlilegt lýðræði ef Sjálfstæðisflokkurinn verður of stór og er sjálfskipaður í ríkisstjórn eftir hverjar kosningar og geti alltaf valið hvern hann tekur með sér í samstarf.  Ég tala nú ekki um hryllinginn ef flokkurinn yrði það stór að hann fengi einn meirihluta.  Þá værum við að nálgast einræði og gætum gleymt lýðræðinu.  Því fagna ég þessari þróun sem er fylgisaukning Samfylkingar á kostnað Sjálfstæðisflokks.  Að vísu hafa sumir Sjálfstæðismenn verið með þá kenningu að fylgisaukning Samfylkingarinnar komi frá Vinstri Grænum.  Ef það er rétt þá vaknar sú spurning hvert fer allt það fylgi sem Sjálfstæðisflokkurinn er að tapa?  Nei Sjálfstæðismenn verða að bíta í það súra epli að þeir eru að missa fylgi til Samfylkingarinnar og best fyrir flokkinn að viðurkenna það sem fyrst.


Flóttafólk

Nú stendir víst til að til Íslands komi palentískir flóttamenn frá Írak um 40 í ár og 40 á næsta ári og mun fólkið fá aðsetur á Akranesi.  Mikil læti hafa verði vegna þess að Magnús Þór Hafsteinsson varabæjarfulltrúi á Akranesi, hefur haft uppi efasemdir um að Akranesbær væri tilbúinn til að taka á móti þessu fólki sem verður sennilega hátt í 100 manns á tveimur árum.  Það er alveg stórfurðulegt að alltaf þegar einhver frá Frjálslynda flokknum ræðir um innflutning á erlendu fólki, þá er ekki skoðuð rétt hlið á málinu og fólk gleymir sér í æsingi og menn eru kallaðir rasistar og sakaðir um að vera á móti erlendu fólki.  Ég er ekki kunnugur á Akranesi og það má vel vera að bærinn sé vel í stakk búinn til að taka á móti þessu fólki.  En mér finnst svolítið undarlegt að Akranesbær skuli geta útvegað þessu fólki húsnæði og annað sem til þarf á meðan 25 fjölskyldur bíða eftir félagslegu húsnæði hjá bænum.  Hvað ætlar bæjarstjórn á Akranesi að segja við það fólk verður það bara að tilkynna þeim að "Því miður þá verði þið að bíða áfram því flóttafólkið verður að ganga fyrir."  Hvað er það sem rekur íslensk stjórnvöld áfram í því að taka á móti flóttafólki?  Væri ekki nær að nýta alla þá peninga sem þetta kostar og aðstoða fólkið þar sem það býr.  Svo er annað sem lítið heyrist um að það eru flóttamannabúðir hér á Íslandi.

Ég ek oft framhjá þessum flóttamannbúðum sem eru í Njaðvík.  Þar er hópur af fólki sem ekki hefur verið vilji til að hleypa inn í landið og fólkið bíður og bíður mánuum saman ef ekki lengur ámeðan mál þess eru til skoðunar í kerfinu.  Þetta fólk er ekki að biðja um aðstoð frá ríkinu eða sveitarfélagi og ætlast ekki til að fá frítt húsnæði eða neitt annað, það ætlar að bjarga sér sjálft og þetta fólk á ekki afturkvæmt til fyrri heimkynna þar sem það yrði drepið eða fangelsað fyrir sínar skoðanir.  Af hverju er þetta fólk ekki jafn hæft til að búa á Íslandi og flóttafólkið frá Írak.

Við höfum áður tekið við hópum af flóttafólki og gert allt fyrir það sem þurft hefur, en hvað skyldi mikið af því fólki enn vera búsett á Íslandi.  Ég er hræddur um að margir séu farnir af landi brott.  Ég er ekki mótfallinn því að hingað flytji erlent fólk en þá eigum við að gera öllum jafnt undir höfði.

Um leið og við eru farin að flokka fólk, sem hér má búa erum við að búa til vandamál, sem heldur áfram að vaxa eftir að fólkið er komið til landsins.  Bæjarfélag eins og Akranes, sem ekki getur aðstoðað sína eigin íbúa er ekki hæft til að taka að sér svona verkefni.  Þar er ég sammála Magnúsi Þór Hafsteinssyni.  Ég verð líka að segja það að ég sem öryrki og á að lifa á rúmum 100 þúsund á mánuði get ekki verið hlyntur því að íslenska ríkið sé að eyða stórfé í flóttafólk á sama tíma og öryrkjar og eldri borgara verða að lifa við hungurmörk og föst í fátækragildru og ekkert virðist vera hægt að gera til að breyta því.

 


Ísbirnir

Það hefur mikið gengið á með þessa tvo ísbirni sem komu á land fyrir norðan.  Ekki græt ég það þótt hafi þurft að skjóta þá báða.  Því hefur verið haldið fram að ísbirnir væru alfriðaðir og því mætti alls ekki skjóta þá.  Þetta er alls ekki rétt því þótt til séu lög um friðun ísbjarna hér á landi er undanþága í lögunum um að ef ísbjörn telst ógna lífi fólks er heimilt að skjóta þá.  Fólk verður að átta sig á því að þetta eru ekki nein meinleysis dýr, heldur vilt öflug rándýr sem hika ekki við að éta einn og einn mann ef þau eru svöng.  Í báðum tilfellum stafaði fólki hætta af þessum dýrum og þau því réttdræp.  Allur sá leikaraskapur og fjárútlát til að reyna að svæfa annað dýrið og flytja það síðan til Grænlands var rugl og vitleysa frá upphafi til enda og þeim til skammar sem að því stóðu. Ef tekist hefði að flytja dýrið til Grænlands og sleppa því þar en nokkuð víst að grænlendingar hefðu drepið dýrið.  Hitt er aftur annað mál að við eigum ekki, ef við neyðumst til að drepa ísbjörn að mynda hann í bak og fyrir alblóðugan og láta slíkar myndir fara síðan um allan heim.  Það á að skjóta dýrin og grafa þau sem fyrst.  Fyrir nokkrum árum sigldi fiskiskipið Guðný ÍS fram á ísbjörn sem var á sundi í Ísafjarðardjúpi.  Skipverjar á bátnum komu stroffu um háls dýrsins og ætluðu að bjarga því með því að hífa það um borð, en sem betur fer hengdist björninn við hífinguna.  Það hefði ekki verið skemmtilegt að vera um borð í þessu skipi ef björninn hefði lifað þetta af.  Hann hefði gengið berserksgang um skipið í leit að æti.

Ég sá fyrir nokkrum árum heimildarmynd frá Kanada og þar voru hjón sem áttu sumarhús einhverstaðar út í skógi og eina vikuna sem þau voru í bústaðnum urðu þau vör við skógarbjörn og til að fá nú frið fyrir birninum ákváðu þau að setja mat á ákveðinn stað fyrir utan bústaðinn.  Björninn kom daglega og alltaf á sama tíma og borðaði matinn og fór síðan aftur inn í skóginn, nú töldu hjónin að björninn væri orðinn þeim vinveittur og lítið mál að búa innan um skógarbirni í sátt og samlyndi.  Svo kom að því að þau hjónin fóru heim en skildu samt eftir mat handa birninum sínum á sama stað og áður.  Næst þegar þessi hjón fóru í bústaðinn sinn blasti við ófögur sjón, bústaður var í rúst og gjörónýtur.  Þau hjónin sátu stjörf í bílnum og trúðu varla eigin augum og svo sáu þau björninn og um leið og hann varð var við þau réðist hann á bílinn og barði hann allan að utan, en sem betur fer gátu þau forðað sér.  Þau áttuðu sig ekki á því að þau voru búin að venja þennan björn á að það væri alltaf matur á ákveðnum stað og þegar svo var ekki áttaði björninn sig á því að maturinn kom úr þessum bústað og ákvað að sækja hann bara sjálfur.

Í myndinni var einnig sýnt frá skógarbirni sem kom inn í smáþorp í Kanada og gekk þar um götur í leit að æti.  Hann sá að fólk kom út úr ákveðnu húsi með matvæli og vissi þá um leið hvar maturinn var og fór hann þá inní matvöruverslun bæjarins og braut þar allt og bramlaði þar til hann fann eitthvað til að éta.  Þannig vildi til að fyrir utan verslunina var amerískur ferðamaður með videoupptökuvél og fór hann til að mynda björninn inní búðinni.  Þegar björninn varð var við manninn sem truflaði hann við að éta óð hann út og elti myndatökumanninn, en sá var svo vitlaus að hann gekk bara aftur á bak og myndaði björninn.  Þetta endaði auðvitað þannig að björninn réðist á manninn og drap hann og át síðan.  Skömmu síðar kom lögreglan og skaut dýrið.

Við ættum að hafa það í huga næst þegar ísbjörn gengur hér á land að þetta eru stórhættuleg grimm rándýr og ekkert á að gera nema skjóta dýrið sem fyrst.  Við getum ekki verið nein björgunarsveit fyrir ísbirni og þó að einhverjar kerlingar út í heimi séu að rífa kjaft á ekkert að hlusta á slíkt t.d. Birgitta Bardot.  Við ættum kannski að bjóða henni til Íslands þegar næsti björn kemur og segja henni að hún megi eiga dýrið og leyfa henni að glíma við að svæfa dýrið og koma því í burtu.


Jæja

Því miður hef ég lítið getað verið á blogginu vegna minnar vinnu og þar af leiðandi lítið skrifað, en nú er ég í frí i nokkra daga og ætla að reyna að bæta aðeins úr, þótt skrif mín séu kannski óttalegt bull og leiðinleg.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband