Mótmælendur ákærðir

Ákæru ríkissaksóknara gegn níu mótmælendum sem brutust sér leið inn í Alþingishúsið 8. desember 2008 var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Enginn ákærðu tók afstöðu til ákærunnar, en það munu þau gera þegar málið verður tekið fyrir næst, 8. febrúar nk.

Þetta eru mikil mistök að ætla að ákæra 9 mótmælendur í því ástandi, sem nú er hér á landi.  Ákæran getur orðið eins og olía á eld nýrra mótmæla, sem verð þá mun öflugri en við höfum áður séð hér á landi.


mbl.is Mál mótmælenda þingfest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Flosi Kristjánsson

Það væri nú ekki mjög heilbrigt að fara út í mótmæli núna, eða hvað?

Flosi Kristjánsson, 21.1.2010 kl. 10:51

2 Smámynd: Skúli Víkingsson

"Þetta eru mikil mistök að ætla að ákæra 9 mótmælendur í því ástandi, sem nú er hér á landi.  Ákæran getur orðið eins og olía á eld nýrra mótmæla, sem verð þá mun öflugri en við höfum áður séð hér á landi." segir þú. Hver á að taka ákvörðun um að fara ekki að landslögum? Hefur einhver vald til þess? Ef svo er, væri þá ástæða til að víkja af vegi réttarríkis?

Skúli Víkingsson, 21.1.2010 kl. 11:00

3 Smámynd: Geir Ágústsson

Jakob,

Frekari hótanir um ofbeldi eru engin ástæða til að láta ofbeldisverk afskiptalaus.

Geir Ágústsson, 21.1.2010 kl. 11:03

4 Smámynd: GAZZI11

Ætli það hafi verið " innanbúðarmaður" með í ráðum ??

GAZZI11, 21.1.2010 kl. 11:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband