Framboð til ritara

Hanna Birna Jóhannsdóttir. Hanna Birna Jóhannsdóttir, Suðurgarði, Vestmannaeyjum, gefur kost á sér í starf ritara Frjálslynda flokksins á landsþingi flokksins sem haldið verður n.k. helgi í Stykkishólmi.Hún segist í tilkynningu hafa tekið virkan þátt í störfum Frjálslynda flokksins frá upphafi, og átt sæti í miðstjórn hans undanfarin ár.

Vonandi gengur henni vel og nær þessu embætti.  Þótt fljótt á litið sé það nú ekki eftirsóknarvert að vera ritari í flokki þar sem allir eru að rífast og skamma hvern annan.


mbl.is Í framboð til ritara Frjálslyndra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bilun

Mynd 487793 Bilanir eru í símakerfi menntasviðs Reykjavíkurborgar og tölvukerfi grunnskólanna í Reykjavík. Símabilunarinnar varð fyrst vart í gær en bilunar í tölvukerfi fyrir helgi. Unnið er að viðgerðum og er vonast til að þeim ljúki í dag.

Það er eitthvað óeðlilegt hvað þessar bilanir eru tíðar.  Er samkeppnin á þessum markaði orði svo mikil að fjarskiptafyrirtækin eru farin að spara í viðhaldi á sínum kerfum.


mbl.is Bilanir í síma og tölvukerfum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hækkun á olíu

Mynd 480940Verð á hráolíu til afhendingar í apríl hækkaði um 5 sent tunnan í 47,12 dali í rafrænum viðskiptum í Asíu í morgun. Brent Norðursjávarolía hækkaði um 29 sent og er 44,42 dalir tunnan. Skýrist hækkunin í dag og í gær á því að líkur eru á að OPEC ríkin dragi enn frekar úr framleiðslu. Telja sérfræðingar á olíumarkaði að það geti þýtt það að olíuverð fari yfir 50 dali tunnan á nýjan leik.

Það hlaut að koma að því og nú fá íslensku olíufélögin tilefni til að hækka aftur verð á eldsneyti, en þau lækkuðu það fyrir nokkrum dögum og spáði ég því þá að fljótlega kæmi hækkun aftur og hún kemur.

Ég fer bráðum að titla mig sem sérfræðing í olíuviðskiptum.


mbl.is Verð á hráolíu hækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eitt hrunið enn

Þá er einn bankinn fallinn í viðbót en það er Straumur-Burðarás hf.  Sparisjóðabankinn riðar til falls en verður sennilega bjargað þar sem hann er eini bankinn fyrir utan Seðlabankann, sem getur afgreitt gjaldeyrir til og frá landinu.

 Ég spyr nú bara hvar endar þetta allt saman? 

Eigum við kannski líka eftir að horfa á hrun sparisjóðanna, hvern á eftir öðrum? 

Verður þá bara eftir Seðlabankinn sem er starfhæfur, en samt er hann tæknilega gjaldþrota og starfa þess vegna á ábyrgð ríkissjóðs.


Yfirtaka fyrirtækja

Nú hefur hið nýja Kaupþing yfirtekið Bifreiðaumboðið Heklu og er með mikla útsölu á notuðum og nýjum bílum.  Þar sem þetta er ríkisbanki er í raun ríkið komið í samkeppni við önnur bifreiðaumboð á þessum markaði.  Þau fyrirtæki hafa skiljanlega ekki burði til að keppa við ríkisfyrirtæki um verð og þjónustu, þess vegna ætti ríkið að selja þetta fyrirtæki sem allra fyrst.  Nú er þessi sami banki líklega að taka yfir annað fyrirtæki sem er Íslenskir Aðalverktakar en fyrir nokkrum árum seldi ríkið sinn hlut í því fyrirtæki til stjórnenda þess.  Sú sala var mjög umdeild á sínum tíma því að ekki var tekið hæsta tilboðinu sem kom frá Jarðborunum hf. sem nú krefur ríkið um skaðabætur vegna þessa máls.  Það er talsvert kaldhæðnislegt að helstu rök ríkisins á sínum tíma voru þau að best væri að selja stjórnendum ÍAV, því þeir væru hæfastir til að reka það.  En hæfnin var nú ekki meiri en svo að ríkið er að fá fyrirtækið í hausinn aftur.  Reyndar er kannski ekki alveg sanngjarnt að skrifa erfiðleika þessa fyrirtækis á stjórnendur þess, því eins og allir vita eru miklir erfiðleikar hjá flestum verktakafyrirtækjunum.

Trúnaður

Mynd 474249Neytendastofa hefur tekið þá ákvörðun að Halldór Guðmundsson, fyrrum starfsmaður Hans Petersen hafi brotið gegn ákvæðum laga um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu með því að nýta sér trúnaðarupplýsingar um birgja Petersen ehf., félags sem tók við rekstri hluta starfsemi Hans Petersen, í atvinnuskyni og án heimildar forráðarmanna Petersen.

Er þetta ekki bara hinn frjálsa samkeppni í anda frjálshyggjunnar sem birtist svona.  En þetta veldur að vissu leiti vonbrigðum hjá mér, sem hélt að eftir allt hrunið hér á landi væri frjálshyggjan dauð.  Þetta staðfestir aftur á móti að eitthvað lífsmark sé með henni ennþá og er það miður.


mbl.is Nýtti sér trúnaðarupplýsingar án heimildar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísfélagið hf.

Atli Gíslason í ræðustóli Alþingis. Atli Gíslason, alþingismaður, gagnrýnir í opnu bréfi, sem birt er á vefnum eyjum.neti í dag, að Baldvin Johnsen, fjárreiðustjóra Ísfélagsins, skuli hafa verið sagt upp störfum fyrir að hafa farið út fyrir heimildir í störfum sínum hvað varðar svonefnda afleiðusamninga eða gjaldeyrisskiptasamninga. Vill Atli að stjórn Ísfélagsins biðji Baldvin afsökunar.

Hvern andskotann kemur Atla Gíslasyni það við þótt Baldvin Johnsen og Páli Ægir Friðbertssyni, framkvæmdastjóra fyrirtækisins, hafi verið sagt upp störfum.  Báðir þessir menn fóru langt út fyrir sitt verksvið og það umboð, sem stjórnin hafði veitt þeim.  Þessi brottrekstur er mjög eðlilegur vegna þess að báðir þessir menn sköðuðu Ísfélag Vestmannaeyja hf. um nokkur hundruð milljónir í verðbréfa braski.  Þeir voru að taka þátt í hinu mikla fjármálabraski sem hér var í gangi, en öfugt við marga aðra voru þeir að nota fé sem aðrir áttu en ekki þeir sjálfir.  Mér finnst líka skrýtið að Atli vill fá afsökunarbeiðni bara fyrir annan manninn en ekki hinn.  Hvaða hagsmuni hefur Atli þarna að gæta?


mbl.is Gagnrýnir uppsögn yfirmanns Ísfélagsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ingibjörg Sólrún

Það verður mikil eftirsjá þar sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir ætlar að hætta í stjórnmálum til að ná fullri heilsu.  Þetta er einn sá stjórnmálamaður sem ég met einna mest.  En hún er nú á besta aldri og þegar heilsan verður komin í lag er ekkert í veginum fyrir því að hún komi aftur í stjórnmálin og þá sterkari en áður. 

Fyrst Jón Baldvin, sem er orðin 70 ára telur sig eiga fullt erindi í stjórnmál á ný, þá er ekkert að því þótt Ingibjörg hvíli sig eitt kjörtímabil.

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er skynsöm kona og gerir sér grein fyrir því að ef heilsan er ekki nógu góð, þá er betra að taka sér hvíld um tíma.


110 ára

Henry Allingham, Harry Patch og William Stone lifðu allir...Hinn 110 ára gamli Harry Patch, sem er einn þriggja Breta sem börðust í Fyrri heimsstyrjöldinni og eru enn á lífi, hlaut í dag eina æðstu heiðursorðu Frakka í viðurkenningarskyni fyrir þær miklu fórnir sem hann hefur fært.

Frábært að það skuli vera enn á lífi maður sem barðist í fyrri heimsstyrjöldinni.


mbl.is 110 ára heiðraður fyrir heimsstyrjöldina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fasteignasala

Skrifstofur New York Times á Manhattan-eyju.Bandaríska dagblaðið New York Times hefur selt hluta af höfuðstöðvum sínum á áttundu tröð á Manhattan. Um leið var gengið frá leigusamningi blaðsins á húsnæðinu. Alls fékk NYT 225 milljónir Bandaríkjadala fyrir 21 hæð af 52 hæðum í höfuðstöðvum blaðsins. Er þetta gert til þess að grynnka á skuldum blaðsins.

Þetta er nú Mogginn þeirra Bandaríkjamanna og ætli Árvakur hefði ekki getað gert slíkt hið sama ef það hefði verið gert tímanlega.  Það var auðvitað orðið of seint til að selja þegar Árvakur hf. var orðin gjaldþrota og á gjörgæslu hjá Glitnir.


mbl.is NYT selur hluta höfuðstöðva sinna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband