Djúpkarfi

 Ráðgjafanefnd Alþjóðahafrannsóknaráðsins hefur komist að þeirri niðurstöðu að djúpkarfi við Ísland auk Grænlandshafs og nærliggjandi hafsvæða séu þrír líffræðilega aðgreindir stofnar. Leggur nefndin til að byggt verði á svæðastjórnun við úthlutun kvóta og að ein stjórnunareiningin verði veiðar í landgrunnshlíðum Íslands.

Þetta eru sem sagt þrír stofnar, en við höfum alltaf okkur trú um að veitt væri úr einum stofni.  Annars held ég að þetta sé sami stofninn og við erum að veiða í okkar landhelgi.  En þetta haf verið talinn sérstaklegur stofn og kallaður Djúpkarfi til að skipin fengju meiri karfakvóta.  Blekking eins og allt í þessu fáránlega kvótakerfi.


mbl.is Þrír aðskildir stofnar djúpkarfa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Akstur

Mynd 492095 Um alllangt skeið hefur lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fylgst með og mælt hraðakstur í Hvalfjarðargöngum. Þar hefur átt sér stað að dregið hefur úr hraðakstri og hlutfall brotlegra ökumanna er nú yfirleitt um 1%. Nokkra athygli vekur að ökumenn virðast flýta sér mikið á sunnudögum en þá er meðalhraði brotlegra ökumanna hærri en aðra daga, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

Þetta er alveg stórmerkilegt, frídagur hjá flestum, nægur tími og enginn ástæða til að flýta sér.


mbl.is Hraðast ekið á sunnudögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Húsasmiðjan

Húsasmiðjan Viðamiklar breytingar standa nú yfir hjá verslunum Húsasmiðjunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þær felast í að loka timbursölunni í Súðarvogi og verður starfsemi hennar flutt í verslun Húsasmiðjunnar í Grafarholti, auk þess sem timburráðgjöf verður einnig opnuð í versluninni í Skútuvogi.

Þetta er nú bara undafari gjaldþrots svo notuð sé hrein íslenska.


mbl.is Timbursala Húsasmiðjunnar flyst í Grafarholt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkisbankarnir

Þegar Íslandsbanki ákvað að taka að sér sölu á Árvakri hf. sem var orðin gjaldþrota var því lýst yfir að allt söluferlið yrði gegnsætt og engu leynt.  Þegar ekkert bólaði á upplýsingum frá bankanum varðandi þessa sölu sem kostaði 3 milljarða í afskriftum, þá skrifaði núverandi fjármálaráðherra Steingrímur J. Sigfússon, bankanum bréf og óskaði eftir að þessar upplýsingar yrðu birtar.  Bankinn sendi fyrst Steingrími svar við annarri fyrirspurn, þessu máli óviðkomandi og þegar Steingrímur ítrekaði fyrri beiðni sína, fékk hann það svar að Íslandsbanki hf. væri sjálfstæð stofnun og gæfi ekki upplýsingar um einstök viðskipti.  Eru stjórnendur þessa banka orðnir ruglaðir?  Halda þeir sig eiga bankann? Nú verður fróðlegt að fylgjast með viðbrögðum fjármálaráðherra.  Því það er mjög mikilvægt að þessar upplýsingar verði gerðar opinberar því eins og Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segir geta þessi viðskipti verið fordæmisgefandi fyrir önnur fyrirtæki sem lenda í svipuðum vanda.

Seðlabankastjóri

Jón Sigurðsson. "Pólitískur flokksforingi hitti útlendan pólitískan foringja á flokksfundi og bað hann vinsamlegast að útvega Íslendingum seðlabankastjóra. Útlendi stjórnmálaforinginn litaðist um í höfuðborg heimalandsins og fann fyrrverandi aðstoðarráðherra og náinn trúnaðarmann í forystu norska Jafnaðarmannaflokksins. Svo voru þessi pólitísku skilaboð send til Íslands. Bingó. Norðmaðurinn er settur seðlabankastjóri í Reykjavík. Hvað er ,,faglegt" við þetta?"

Það vita nú allir sem eitthvað hafa fylgst með er þessi norðmaður bara tímabundið Seðlabankastjóri á meðan verið er að auglýsa stöðuna.  Ég lít þannig á að það sé bara ágætt að erlendur maður gegni þessari stöðu núna tímabundið.  Því er ekki oft sagt;  "Glöggt er gests auga."  Það er aldrei að vita nema að hann komi með nýja sýn á íslenskt hagkerfi.


mbl.is „Hvað er faglegt við þetta?"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afsökunarbeiðnir

Eftir að Ásta Möller þingmaður Sjálfstæðisflokksins baðst opinberlega afsökunar á þeim mistökum sem hennar flokkur gerði í aðdraganda bankahrunsins, fer nú hver þingmaðurinn eftir annan í flokknum í ræðustól á Alþingi til að biðja íslenska þjóð afsökunar á því sama.  Nema formaður Sjálfstæðisflokksins Geir H. Haarde, sem telur sig ekki þurfa að biðjast afsökunar á einu né neinu.  Enda er hann að horfa til framtíðar en ekki fortíðar.

Sjálfstæðisflokkurinn

Sjálfstæðisflokkurinn hefur sett af stað nefnd sem kallast Endurreisnarnefnd flokksins og á að skoða hvað fór úrskeiðis hjá flokknum í aðdraganda bankahrunsins.  Fyrstu drög sem frá þessari nefnd komu voru mjög hörð gagnrýni á forustu og þingmenn flokksins.  Geir H. Haarde sagði að nefndin ætti að horfa til framtíðar en ekki fortíðar.  Nefndin getur auðvitað horft til framtíðar en hvernig á hún að geta komið með tillögur um eitthvað sem þarf að endurreisa í framtíðinni og laga hluti sem ekki hafa enn skeð.  Eða er það skoðun Geirs H. Haarde að það eigi að ganga að því sem vísu að sömu mistökin verði gerð í framtíðinni.  Þetta er þokkalegur boðskapur til kjósenda í næstu kosningum

Tónlistarhús

Mynd 490892 Sjómannafélag Íslands lýsir furðu sinni á því að halda eigi áfram smíði tónlistarhúss fyrir 15 milljarða á sama tíma og Landhelgisgæsla Íslands er hálflömuð vegna fjárskorts. Þetta kemur fram í ályktun frá stjórn Sjómannafélags Íslands.

Ég tek heilshugar undir þetta og má segja að þetta sé undarleg forgangsröðun.  Best væri að láta þetta tónlistarhús stand eins og það er í dag, sem minnisvarða um allar þá vitleysu sem hér var þegar stjórnendur Íslands héldu að Ísland væri ríkasta land í heimi.


mbl.is Furða sig á framkvæmdum við tónlistarhús
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kosningar

Nú er hryllilegur tími framundan fyrir venjulegt fólk.  Þar á ég við öll prófkjörin og síðan kosningarnar.  Það má ekki skilja orð mín svo að ég sé á móti kosningum en allt sem er í kringum þær er óþolandi.  Fyrst byrja prófkjörin og þá fyllist hjá manni póstkassinn af bæklingum þar sem fólk er að lýsa eigin ágæti og maður hefur varla við að bera þetta drasl í ruslið, því auðvitað les þetta ekki nokkur maður.  Síðan koma kosningarnar og þá tekur nú ekki betra við.  Í stað bæklinga koma nú heilu blöðin frá flokkunum með kynningum á frambjóðendum og stefnu viðkomandi flokks.  Þessu verður maður síðan að drösla í ruslið, því það er sama með þetta og prófkjörsbæklinganna að enginn nennir að lesa þetta.  Ástæðan er sú að fólk veit af reynslunni að ekki er að marka eitt einast orð sem stendur í þessum blöðum.  Ég lít á þessar sendingar sem hreina móðgun og tel að verið sé að segja mér að ég sé hálfviti sem geti ekki ákveði sjálfur hvað ég ætli að kjósa og þurfi þess vegna aðstoð frá flokkunum.  Það mun víst verið búið að setja einhverjar reglur um hvað hver frambjóðandi má eyða í sitt prófkjör.  Þetta er misjafnt eftir kjördæmum og er hæðst í  Reykjavík er þar má hver frambjóðandi eyða kr: 7,5 milljónum.  Þetta eru nú þó nokkuð miklir peningar og einhverstaðar frá koma þeir.  Mér dettur í huga sagan af fv. sóknarpresti sem var á Bíldudal eitt sinn og fór seinna að vinna í kjötiðnaðarstöð SÍS á Kirkjusandi.  Þar átti eitt sinn leið um maður frá Bíldudal og þegar hann sá prestinn fyrrverandi fór hann til hans og spurði; "Eru þetta nú ekki talsverð viðbrigði frá því að vera sóknarprestur og fara að vinna hér erfiðisvinnu í frystiklefa."  Þá svaraði presturinn; "Ja það er nú bara svona í dag að peningarnir eru ekki lengur teknir upp úr skítnum."   Það sama mætti halda um suma frambjóðendur að hægt væri að tína peninganna upp úr skítnum.  Því enginn viðurkennir að fá styrk frá neinum aðila.

Úttekt

Bæjarfulltrúar S-lista Samfylkingar og óháðra og B-lista Framsóknarflokks í Sandgerðisbæ leggja það til fyrir bæjarstjórnarfund í dag að óháður sérfróður aðili verði fenginn til að gera úttekt á samningum Sandgerðisbæjar og Eignarhaldsfélagsins Fasteignar.

Þetta er alveg furðulegt bæði hér í Sandgerði, Reykjanesbæ og víðar að þetta Eignarhaldsfélag Fasteign á allar fasteignir sem eitt bæjarfélag þarf á að halda t.d. skóla, leikskóla, íþróttarmannvirki ofl.  Síðan verða bæjarfélögin að greiða stórar fjárhæðir í leigu á hverju ári og nú síðast þegar þetta félag var í fjárhagserfiðleikum, þá tóku sveitarfélögin lán hjá Lánasjóði Sveitarfélaga og lánuðu Fasteign.  Sem sagt er þetta svona;

Sveitarfélögin taka lán og lána Eignarhaldsfélaginu Fasteign sem notar peningana til að byggja fyrir sveitarfélögin og leigir þeim síðan.  Hver skilur svona hringavitleysu?  Væri ekki eðlilega að fyrst sveitarfélögin geta tekið lán að byggja bara sjálf sínar fasteignir og sleppa þessum millilið sem auðvitað fær einhverja þóknun fyrir.


mbl.is Vilja úttekt á samningum Sandgerðisbæjar og Fasteignar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband