Fiskeldi

Mikil tjón hafa hlotist á eldisbúnaði, einkum sjókvíum, sökum erfiðra umhverfisaðstæðna við Ísland. Í því ljósi er verkefninu NORÐURKVÍ hrundið af stað með það að markmiði að hanna og smíða sjókvíar sem uppfylla ýtrustu kröfur um styrk og þol fyrir íslenskar aðstæður.

Þetta eru góðar fréttir, því það er deginum ljósara að fiskeldi og þá sérstaklega þorskeldi mun verða stór atvinnugrein hér á landi og ættu stjórnvöld að standa vel við bakið á þessari atvinnugrein.  Við gætum t.d. lokað heilu fjörðunum og látið loðnuskipin dæla loðnu í þessa firði.  En þetta er fjárfrek grein og þess vegna er opinber stuðningur við hana mikilvægur, því að nokkur ár geta liðið frá því byrjað er og þar til tekjur fara að koma inn.  Samherji hf. er búinn að ná góðum tökum á að ala upp þorskseiði í stöð sinni á Stað við Grindavík og fyrir stuttu kom þangað sérútbúið skip og tók nokkur hundruð þúsund seiði, sem höfðu verið seld til Noregs.  Reynslan hefur kennt okkur að besti árangur næst með því að ala upp seiði í sjókvíum en ekki veiða smáfisk og setja í kvíar.  Þetta er framtíðin en skortur á fjármagni hefur tafið þessa þróun hjá okkur og vonandi verður breyting þar á.


mbl.is Smíða sjókvíar sem þola íslenskar aðstæður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Paul Ramses

Nú er búið að kæra ákvörðun Útlendingastofnunar mál Paul Ramses til dómsmálaráðuneytisins og er það nú í höndum Björns Bjarnasonar ráðherra.  Ég ætla að vona að Björn muni gera allt sem hann getur til að bjarga Paul Ramses.  Svo vonandi fær þessi harmleikur lítillar fjölskyldu góðan endir.

Annars hrökk ég illa við þegar ég var að horfa á sjónvarpsfréttir í gærkvöld og sá þar að Jón Magnússon alþingismaður var að réttlæta þá ákvörðun að vísa manninum úr landi.  Þetta hélt ég að væri ekki stefna Frjálslynda flokksins.  Ég varð svo reiður að hlusta á Jón að ég fór alvarlega að íhuga að segja mig úr Frjálslynda flokknum, en ákvað að bíða og sjá til.  Því annaðhvort er ég eða Jón í röngum flokki miðað við okkar skoðanir.  Hvað rekur Jón Magnússon til þess að verja óréttláta meðfeð stjórnvalda á máli Paul Ramses.  Við sem störfum í grasrótinni hjá Frjálslynda flokknum höfum mátt hafa okkur öll við að sannfæra fólk og útskýra að Frjálslyndi flokkurinn er ekki á móti að erlent fólk setjist hér að.  En svo kemur Jón með þessa yfirlýsingu og slær um leið öll vopn úr okkar höndum.  Þótt Jón hafi þessa skoðun var óþarfi að koma með hana í sjónvarpsfréttum, hann átti alla veganna að hafa vit á því að halda kjafti. 

Getum við kannski átt von á því að Jón Magnússon fari að verja mannréttindabrot stjórnvalda um kvótakerfið.  Hver veit?


Þjófar

Brotist var inn í tvo sumarbústaði í Galtarholti í Borgarbyggð í nótt. Að sögn lögreglunnar í Borgarnesi höfðu þjófarnir á brott með sér tölvur, tölvuskjái og brauðrist.

Hvernig dettur fólki i hug að skilja eftir í mannlausum sumarbústöðum, tölvur og flatskjái.  Annars skil ég ekki hvers vegna brauðristin höfði svona sterkt til þjófanna.


mbl.is Þjófar höfðu á brott með sér tölvur og brauðrist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sumar

Sumarið er dásamlegur tími þegar vel viðrar.  Þó er eitt sem fer óskaplega í taugarnar á mér en það er allar þessar garðsláttuvélar og sláttuorf.  Ég sest oft út á svalir þegar gott er veður og reyni að lesa í bók.  En alltaf þegar ég er búinn að koma mér vel fyrir byrja einhverstaðar þessi tæki að hamast og suðið verður yfirþyrmandi.  Þetta er eins og hundrað þúsund radarflugur sé á ferð slík eru lætin.  Auðvitað get ég vel skilið að fólk vilji hafa garða sína vel hirta en öllu má nú ofgera og varla getur verið nauðsynlegt að slá hvern garðblett á hverjum degi til að hafa hann snyrtilegan.  Verst er þetta um helgar, þá eru allir að hamast með sína sláttuvél og sláttuorf svo heilu hverfin nötra undan látunum.  Nú er svo komið að ég fagna orðið hverjum sólarlausum degi og rigning er mitt uppáhald.

Leiðrétting

Mér hefur verið bent á að hjónin sem ég skrifaði um í greininni Ríkisútvarpið ohf.  Hafi ekki verið Gestur Gíslason og hans kona.  Því Gestur var bóndi í Trostansfirði og hans kona hét Filippía sem aftur á móti var systir Málfríðar sem ég nefni í greininni og hennar maður var Ólafur Bjarnason og átti atvikið í kirkjugarðinum við um Ólaf Bjarnason en ekki Gest Gíslason.  Þetta er hér með leiðrétt, því ég reyni eftir bestu getu að hafa sannleikann að leiðarljósi í mínum skrifum.

Þótt ég þykist vita að þessi nafnruglingur hafi ekki sært neinn,því þetta fólk er allt löngu dáið og var nú óttalegir sérvitringar í lifanda lífi.


Bloggfærslur 10. júlí 2008

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband