Vatn til Eyja

Lokið verður við lagningu leiðslunnar í kvöld.Vel hefur gengið að leggja nýja kaldavatnsleiðslu úr landi til Vestmannaeyja og mun þeirri aðgerð væntanlega ljúka í kvöld. Skipið Henry P. Lading er sérhannað til verksins og eru 40 ár síðan það lagði síðustu lögn þessa sömu leið.

Þá fá Eyjamenn vonandi nægjanlegt vatn, því fátt er verra en skortur á vatni.  En hjá hverjum fengu þeir vatnið, er ekki búið að setja í lög að allt vatn á Íslandi er í eigu ákveðinna aðila?  Var það ekki tilgangurinn með "Vatnalögunum" frægu? og rifist sólahringum saman um á Alþingi á sínum tíma.


mbl.is Lagningadagar í Eyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mjólk

Það er allt á floti í mjólk hjá yfirmanni landbúnaðarmála hjá ESBYfirmaður landbúnaðarmála hjá Evrópusambandinu, Mariann Fischer Boel, biður þýska bændur um að hætta að senda sér mjólk í pósti. Hefur hún fengið um tíu þúsund lítra af mjólk senda og mikið af mjólkinni kemur með almennum pósti heim til hennar.

Af hverju drekkur konan ekki bara mjólkina og hættir þessu væli.  Þetta eru sniðug mótmæli hjá bændum í ESB og ættu íslenskir bændur að gera eitthvað álíka þegar stjórnvöld vilja ekki hlusta á mótmæli þeirra.


mbl.is Ekki meiri mjólk takk fyrir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er komið nóg af rugli

Meðferðin á flóttamanninum Paul Rames er okkur Íslendingum til skammar og mun verða lengi.  Hvers vegna var ekki hægt að leyfa manninum að dvelja hér á landi ásamt eiginkonu sinni og nýfæddum syni þeirra.  Ég sá viðtal við forstjóra Útlendingaeftirlitsins í sjónvarpinu og hvílíkur hroki og valdníðsla getur verið í einum manni.  Það var eins og verið væri að tala við vélmenni og algjört möppudýr.  Það vantaði ekki að hann þyldi upp hinar og þessar reglugerðir og lög.  Það kom fram hjá þessu möppudýri að það sem hefði verið í veginum fyrir því að maðurinn fengi hér dvalarleyfi væri það að eiginkona hans dveldist hér í leyfisleysi og næst væri að vísa henni úr landi líka.  Var þá ekki hægt að leysa málið með því a veita henni dvarleyfi líka.   Ég get tekið undir orð Jónasar Kristjánssonar fv. ritstjóra, sem sagði á bloggi sínu að við gætum lokað Útlendingastofnun og í staðinn sett upp símsvara seg segði "Úr landi" í hvert skipti sem hringt væri í þessa stofnun.

Ísbirnirnir sem komu hingað í leyfisleysi voru skotnir en kjarkurinn hjá okkar mönnum var ekki meiri en svo að stjórnvöld þorðu ekki að taka þennan mann af lífi, heldur ætluðu öðrum það verkefni.  Það er alveg rétt hjá möppudýrinu að í þessu máli var farið nákvæmlega eftir lögum og reglum, þótt heilbrigð skynsemi segði það vera rangt.  Möppudýrið viðurkenndi að það hefði verið hægt að gera undanþágu en þá væri búið að skapa fordæmi svo það væri ekki hægt.  Hvað með flóttamennina frá Palestínu verður það ekki fordæmi líka.  Nú er skrýtin staða komin upp hjá þessari fjölskyldu sem er þannig:  Faðirinn Paul Ramses er í flóttamannabúðum á Ítalíu og verður örugglega sendur þaðan til Kenja og drepinn.  Móðirin verður rekin úr landi og send til Svíþjóðar þar sem hún hefur dvalarleyfi.  Litla barnið er fætt hér á landi og á því fullan rétt á að verða íslenskur ríkisborgari.  Er nema von að Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra sé ánægður með sitt fólk, sem hefur í einu og öllu farið eftir leikreglunum og ekki verið að gefa neitt eftir.  Því auðvitað gæti verið að Paul Ramses væri hættulegur maður, hann hefur að vísu unnið fyrir íslensk stjórnvöld í hjálparstarfi í Afríku og einnig unnið með barnhjálp ABC í Afríku.  En allur er varinn góður og því þótti öruggast að senda þennan mann beint í aftöku.

Sem betur fer lætur fólk í okkar landi ekki bjóða sér hvað sem er og er nú þessi ákvörðun um að vísa Paul Ramses úr land, gagnrýnd á hverjum degi fyrir framan dómsmálaráðuneytið.  Þessi miklu mótmæli hafa haft þau áhrif að forustumenn innan Samfylkingarinnar vilja láta endurskoða þessa ákvörðun og vonandi verður það gert áður en allt verður vitlaust í þjóðfélaginu.  Það er mín skoðun að reka eigi möppudýrið hjá Útlendingastofnun og Björn Bjarnason eigi að segja af sér vegna alls þess klúðurs sem þetta mál er.  Ég er einn af mörgum sem skammast mín fyrir að vera Íslendingur vegna þessa máls.


Bloggfærslur 8. júlí 2008

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband