Framsókn

Guðlaugur G. Sverrisson. Vafamál er að varafulltrúi Framsóknarflokksins sé kjörgengur til borgarráðs. Þetta kemur fram í svari sem skrifstofustjóri borgarstjórnar leggur fram í borgarráði í dag, samkvæmt upplýsingum frá Svandísi Svavarsdóttur, borgarfulltrúa VG.

Hvað gerir Óskar Bergsson nú?  Sennilega ekki neitt enda til hvers þarf þessi maður að vera kjörgengur í borgarráð.  Hann er stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur og annar maður á lista Framsóknar er varamaður fyrir Óskar Bergsson en ekki Guðlaugur Sverrisson, sem skipaði 14. sæti listans.


mbl.is Vafi um kjörgengi varafulltrúa Framsóknarflokks í borgarráði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ljósmæður

Ekki skil ég af hverju er ekki hægt að ganga að launakröfum ljósmæðra.  Þetta er ein mikilvægasta stéttin í heilbrigðiskerfinu.  Þær annast það sem hverri fjölskyldu er dýrmætast, sem eru börnin.  Ekki bara fæðinguna sjálfa, heldur fylgjast þær með allri meðgöngu ófrískra kvenna, bæði fyrir og eftir fæðingu.  Ég styð ljósmæður heilshugar í þeirra baráttu og vona að þetta fái farsælan endir. 

Ef ríkið þarf að spara verður það að finna aðra leið en að halda niðri launum ljósmæðra.


Bloggfærslur 4. september 2008

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband