Ósáttir

Liðsmenn Hizbollah hlusta á leiðtoga sinn, Sayyed Hassan...Háttsettur liðsmaður stjórnar Baracks Obama í Bandaríkjunum segir að undrun ríki í Washington yfir þeirri ákvörðun Breta að ræða við pólitískan arm Hizbollah-samtakanna herskáu í Líbanon. Bandaríkin og Ísrael líta á samtökin sem hermdarverkasamtök.

Óánægja Obama er vel skiljanleg því þessi skæruliðasamtök eru mjög sterk í suðurhluta Líbanon og fær bæði fjárstuðning og vopn frá Íran til að ráðast á Ísrael.


mbl.is Ósáttir við Breta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eva María

Mikil gagnrýni hefur komið fram á Evu Maríu sem spyrils í þáttunum "Gettu betur" í Velvakanda Morgunblaðsins, en þetta er spurningarkeppni framhaldsskólanna.   Það má segja að hún sé þar lögð í einelti.  Reyndar fannst mér fyrsti þátturinn slæmur því að í hraðaspurningunum spurði hún svo hratt að ég náði aldrei að heyra spurningarnar og byggist áðurnefnd gagnrýni á því.

En eftir þann þátt hefur mér fundist hún standa sig mjög vel og er mjög skýrmælt þegar hún spyr og hefur góða stjórn á áhorfendum í salnum.  Þar sem þessar spurningar eru aðeins í 100 mínútur er eðlilegt að reynt sé að komast yfir sem flestar spurningar í þessum lið þáttarins.  Hún er líka hress og skemmtileg og að mínu mati stendur hún sig mjög vel eða 100%.


Auglýsing

Neytendastofa mælist til þess við Símann að fyrirtækið stöðvi birtingar á auglýsingum sínum sem nú eru í gangi. Vodafone og Nova hafa kært birtingu auglýsinganna og telja að hún brjóti gegn lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu.

Hvað er eiginlega að þessari auglýsingu, ég sé ekki að hún vegi neitt að Vodafone eða Nova.  Eða má Síminn aldrei auglýsa neitt.


mbl.is Neytendastofa vill Hilmi Snæ af skjánum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lýðræðishreyfingin

Prófkjör Lýðræðishreyfingarinnar fer fram í dag og næstu daga á vefnum austurvollur.is. Þar er settur fram óraðaður listi og kjósendur velja sjálfir úr þá sem þeir vilja á þing úr 126 einstaklingum.

Þetta er ný aðferð og nefnd hafa verið nöfn eftirtaldra; Þráinn Bertelsson, Jón Magnússon, Kristinn H. Gunnarsson, Jón Baldvin Hannibalsson, Arnþrúður Karlsdóttir og Davíð Oddsson.  Ekki veit ég hverjir af þessum mönnum er í þessari hreyfingu, en Jón Magnússon er í prófkjöri í Reykjavík fyrir Sjálfstæðisflokkinn og Kristinn H. Gunnarsson tók þátt í prófkjöri Framsóknar nýlega og Jón Baldvin Hannibalsson ætlar að gefa kost á sér fyrir Samfylkinguna.  Kristinn H. fékk reyndar ekki góða útkomu í prófkjöri Framsóknar, svo kannski reynir hann fyrir sér á nýjum slóðum.  Eftir eru þá Þráinn Bertelsson, og Davíð Oddsson.  Það er boðið upp á 126 einstaklinga og ég velti fyrir mér afhverju sá fjöldi var valinn.   Eru kannski ekki fleiri félagar í þessum samtökum?


mbl.is Prófkjör Lýðræðishreyfingarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íþróttir

Teitur Örlygsson þjálfari Stjörnunnar fer með lærisveina... Úrslitakeppni karla í körfuknattleik hefst í dag með tveimur leikjum. Grindavík tekur á móti ÍR og Snæfell fær Stjörnuna í heimsókn. Á morgun mætast síðan KR og Breiðablik og nágrannaslagur verður í Keflavík þar sem Njarðvík verður í heimsókn. Það lið sem fyrr sigrar í tveimur leikjum kemst í undanúrslitin.

Ég hélt nú að hverjum manni væri heimilt að taka þátt í íþróttum í sínum frítíma og ekki þyrfti neitt leyfi til þess.  Það gilda kannski aðrar reglur um lögreglumenn.  Það getur líka verið að þetta skarist eitthvað á við vinnutíma mannsins.


mbl.is Löggan fær leyfi sýslumanns til að spila
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hundur

Bretinn Philip Carter svaraði í sömu mynt þegar hundurinn Splodge beit hann í höndina. Réðst Carter þá á hundinn og beit hann í nefið svo að blóðpollur myndaðist á vettvangi.

Gott hjá honum, en hitt er aftur á móti fáránlegt að eigandi hundsins ætlar víst að kæra málið.  Ég hefði talið að það ætti að vera öfugt.  Því auðvitað ber hver eigandi ábyrgð á sínum hundi.


mbl.is Maður bítur hund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skattaskjól

 Alistair Darling (t.h.), fjármálaráðherra Bretlands og...Fjármálaráðherrar og seðlabankastjóra 20 helstu iðnvelda heims funda nú í Bretlandi. Verður einkum fjallað um kreppuna og leiðir til að hleypa krafti í efnahagslífið en einnig vandann vegna skattaskjóla. Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, segir að nú sjái fyrir endann á tilveru skjólanna.

Þetta eru góðar fréttir og Bretum ætti að reynast auðvelt að koma þessu í framkvæmd.  Því flest þessara skattaskjóla eru á eyjum sem eru undir yfirráðum Breta.

Nú eigum við að tilkynna Bretum að þeir skuli fara og finna okkar peninga sem eru geymdir á þessum eyjum og þannig gert upp Icesave-reikninganna.  Annars held ég að útrásarvíkingarnir eigi ekki mikið af peningum á þessum eyjum.  Þeir menn áttu aldrei til neina peninga og öll útrásin var fjármögnuð með lánum, sem voru framlengd hvað eftir annað.  Þegar það var ekki hægt lengur, þá hrundi allt eins og spilaborg.  Eða trúir því nokkur maður að Jón Ásgeir hefði látið Baug Group fara í gjaldþrot, ef hann hefði átt marga milljarða erlendis.


mbl.is Endalok skattaskjóla?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þrýstiafl

Mynd 492899 „Það er heilmikil starfsemi komin og við erum rétt að byrja,“ segir Bryndís Bjarnason sem var í gær kosin í neyðarstjórn kvenna ásamt þeim Ragnhildi Sigurðardóttur, Eddu Arinbjarnar, Helgu Óskarsdóttur og Höllu Þorgeirsdóttur.

Þetta fyrirbæri, sem kallar sig Neyðarstjórn mun ekki verða stjórnmálaflokkur, heldur til þess ætlaður að halda utan um konur, vera með ýmis námskeið og vinnumiðlun.  Þessar konur munu ætla að gefa framboðslistum einkunn eftir því hvernig þeir verða skipapaðir þ.e. á milli kynja.

Ég spyr nú bara af minni fávisku í hverra umboði á þessi Neyðarstjórn að starfa?  Ég veit ekki betur en það sé stefnan hjá flestum flokkum að hafa sína framboðslista skipaðar sem næst því jafnt milli karla og kvenna.


mbl.is Verði þrýstiafl á stjórnvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Séreignasparnaður

Nú hefur verið leyft að taka út séreignarsparnað í áföngum til að bæta fjárhag fólks.  Mörgum bregður illa við þegar þeir fá þessar greiðslur frá bönkunum.  Því það sem fólki var aldrei sagt frá er að bankarnir gengistryggðu þennan sparnað og nú þegar gengið hefur falli svo mikið hefur þessi eign rýrnað um allt að 40%.  Þannig að sá sem átti eina milljón í september á ekki nema 600 þúsund.  En það er ekki allt búið enn því nú eru þessar greiðslur skattlagðar sem tekjur og skattstofninn er ekki 600 þúsund heldur upprunalega talan 1.000.000,- og þá fer í skattinn um 360.000,-  Svo tekur bankinn einhverja þóknun fyrir að hafa geymt þessa peninga.  Þannig að endanleg upphæð verður tæp 400 þúsund, sem dreifast á 9 mánuði.  Því ætti fólk að hugsa sig vel um áður en það ætlar að taka út þennan sparnað sinn. 

Þegar fólk greiddi í þessa sjóði var það hlutfall af launum þess og skattlagt þá eins og önnur laun.  Er því búið að skattleggja þennan sparnað tvisvar.  Svo eru stjórnmálamenn að halda því fram að íslendingar kunni ekki að spara.  Auðvitað kunna íslendingar að spara eins og aðrar þjóðir.  En hver vill spara til þess eins að láta síðan stela sparnaðinum frá sér.

Til að fyrirbyggja misskilning þá skal það tekið fram að hin venjulegu iðgjöld til lífeyrissjóða 4% eru aldrei skattlögð.  Þetta á einungis við um séreignasparnaðinn, sem var hugsaður sem ákveðin launauppbót á sínum tíma. 


Prófkjör

Þessi helgi er mikil prófkjörshelgi hjá stjórnmálaflokkunum.  Auk þess er formannskosning hjá Frjálslynda flokknum, sem heldur landsfund sinn í Stykkishólmi.  Nú munur samherjar berjast víða um land.  Oft vill það koma fyrir að fólk sé ekki sátt við útkomuna og þá byrja leiðindin og sár sem seint gróa.

Ég er alfarið á móti prófkjörum og tel best að kjördæmisþing í hverju kjördæmi stilli upp á framboðslista.  Þegar það er búið má svo hafa póstkosningu hjá þeim sem eru flokksbundnir í viðkomandi flokki um endanlega röðun á listanum.  Setja ætti sem skilyrði fyrir þáttöku að viðkomandi hafi verið skráður í flokkinn a.m.k. einum mánuði fyrir kosninguna.  Þar með væri öll sú smölun, sem nú er í gangi óþörf.

Það hefur maroft skeð að stórir hópar taka þátt í mörgum prófkjörum og hafi þannig áhrif á marga framboðslista.  Er það lýðræðið sem við viljum?  Nei takk, segi ég enda tek ég ekki þátt í neinu prófkjöri.  Nú eru dagblöðin full af greinum og auglýsingum um frambjóðendur í prófkjöri og í útvarpinu glymja auglýsingar látlaust um hvern eigi að kjósa í prófkjöri.  Blöð og bæklingar fylla hjá manni pósthólfið dag eftir dag og allt fer þetta beint í ruslið ólesið.

Þetta er bara forsmekkurinn af því sem eftir á að koma þ.e. sjálfar Alþingiskosningarnar.  Það mæti ætla að frambjóðendu telji kjósendur almennt vera bjána, sem ekkert viti í sinn haus.  Þess vegna verði að matreiða ofaní þá hvað þeir eigi að kjósa.


Bloggfærslur 14. mars 2009

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband