Saks

Saks í New YorkEfnahagskreppan hefur áhrif víða meðal annars á verslunarfyrirtækið Saks á Fimmtu tröð í New York. Baugur Group á 8,5% hlut í fyrirtækinu og samkvæmt frétt New York Post í dag þá er ekki útilokað að sá hlutur hafni í höndum íslenska ríkisins vegna bágrar fjárhagsstöðu Baugs.

Ég ætla nú að vona að íslenska ríkið þurfi ekki að hafa mikil afskipti af þessu fyrirtæki og geti selt þessi hlutabréf fljótt.  Ríkið hefur nóg á sinni könnu með íslensk fyrirtæki sem starfa á Íslandi svo svona lagað bætist nú ekki við.


mbl.is Verður íslenska ríkið hluthafi í Saks?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framsókn

Sigurður Ingi Jóhannsson Sigurður Ingi Jóhannsson, dýralæknir í Syðra-Langholti verður í fyrsta sæti á lista Framsóknarflokksins á Suðurlandi. Þetta er niðurstaða póstkosningar sem verið var að kynna á kjördæmisþingi flokksins á Selfossi. Eygló Harðardóttir, alþingismaður hafnaði í öðru sæti.

Þarna er eitt dæmið enn sem sitjandi þingmaður verður að víkja fyrir nýjum aðila.  Því ekki á ég von á að Framsókn fái nema einn þingmann í þessu kjördæmi, þegar bæði Guðni Ágústsson og Bjarni Harðarson eru ekki í baráttunni.  Það er því útlit fyrir að mikið af nýjum þingmönnum komi á Alþingi eftir kosningar.


mbl.is Sigurður Ingi í fyrsta sæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kaupþing

Kaupþing banki Kaupþing lánaði stærstu eigendum sínum og tengdum aðilum samtals 478 milljarða króna, samkvæmt lánabók Kaupþings, en Morgunblaðið hefur hluta hennar undir höndum. Um er að ræða lán til Ágústs og Lýðs Guðmundssona, Ólafs Ólafssonar, Roberts Tchenguiz og félaga í þeirra eigu.

Hvar eru nú svo allir þessir peningar, ef þeir eru faldir erlendis hlýtur að vera hægt að nálgast þá.  Annars var Davíð Scheving með góða tillögu í Silfri Egils í dag.  Hann sagði; 

"Að þar sem allir þessir peningar væru í skattaskjóli á eyjum í Karabískahafinu, sem Bretar ráða yfir.  Þá ættum við að segja við Breta peningarnir sem við skuldum ykkur eru í ykkar lögsögu og gjörið þið svo vel og sækið þessa peninga og skilið okkur svo afganginum." 

Gott hjá Davíð, hann kom líka inn á að fyrir um 80 árum hefði 1 íslensk króna verið jafvirði 1 danskrar krónu.  Við værum á þessum árum búnir að taka tvö núll af okkar gjaldmiðli og miðað við það þá væri nú 1 dönsk króna sama og 1.900 íslenskar krónur.  Þetta segði okkur það að efnahagsmálum á Íslandi hefði verið 1900 sinnum verr stjórnað en hjá Dönum sem hefðu nú aldrei þótt neinir snillingar á því sviði.


mbl.is 500 milljarðar til eigenda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dagur B. Eggertsson

Knattspyrnufélagið Styrmir„Ég kvíði því mest að spila á móti Degi B. Eggertssyni því hann getur verið ansi liðtækur og lúmskur,“ segir Jón Þór Þorleifsson, einn af liðsmönnum fótboltafélagsins Styrmis sem í samstarfi við Iceland Express kynnir alþjóðlegt fótboltamót samkynhneigðra á Íslandi um páskana 2009.

Það má vel vera að Dagur sé lúmskur í fótboltanum, en í stjórnmálunum er hann það ekki.  Hann er heiðarlegur og frábær stjórnmálamaður.


mbl.is Dagur B. liðtækur og lúmskur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Erlendir sérfræðingar

Eva JolyFyrrum rannsóknardómarinn Eva Joly segir að nauðsynlegt sé að þeir sem komi að rannsókninni á því hvað olli bankahruninu séu sérþjálfaðir. Ekki nægi að Íslendingar komi að rannsókninni heldur verði að leita til erlendra sérfræðinga sem hafi reynslu af rannsóknum sem þessu. Joly var gestur Egils Helgasonar í Silfri Egils í dag.

Þessu er ég algerlega sammála því þótt íslendingar eigi mjög hæft fólk á þessu sviði eru alltaf til staðar einhver tengsl við þá sem á að rannsaka.  Svo er gott að fá fólk sem er sérþjálfaði í svona málum.  Eins var gott að norskur maður yrði Seðlabankastjóri tímabundið, á meðan staðan er auglýst og fundin hæfur íslenskur maður í starfið.


mbl.is Joly: Leita þarf til erlendra sérfræðinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Norðausturkjördæmi

Það urðu mjög óvænt úrslit í prófkjöri Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi í gær.  Kristján L. Möller fékk 1. sætið en 2. sætið fékk Sigmundur Ernir Rúnarsson fv. fréttamaður.  Einar Már Sigurðsson alþm. gerði þau mistök að bjóða sig bara fram í 1. eða 2. sætið, sem varð til þess að hann hrundi niður listann og var ekki á meðal 10 efstu.  Það er mjög ánægjulegt að fá Sigmund Ernir inn á Alþingi.  Hann mun koma með ferskan blæ inn á þing.  Ef Einar Már hefði haft vit á því að bjóða sig fram í 3. sætið hefði honum örugglega gengið betur.  VG hefur í dag 2 þingmenn í þessu kjördæmi.

Vinstri stjórn

Svandís Svavarsdóttir er á hraðri leið inn í landsmálapólitíkina. Stærsta verkefnið framundan er að tryggja vinstristjórn í landinu eftir kosningar og að Sjálfstæðisflokkurinn fái hvíld. Það er lífsnauðsyn fyrir íslenskt samfélag að hann geri það," segir Svandís Svavarsdóttir borgarfulltrúi, sem vegnaði vel í forvali VG í Reykjavík.

Auðvitað verður vinstri stjórn í landinu eftir kosningar og þá með VG og Samfylkingunni.  Þessir tveir flokkar munu ná hreinum meirihluta eftir kosningar og þurfa því ekki að teysta á duttlungafullan stuðning Framsóknar.


mbl.is Vinstristjórn lífsnauðsyn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VG

Kolbrún Halldórsdóttir hafnaði í sjötta sæti, Álfheiður... Endanlega úrslit í forvali Vinstri grænna í Reykjavík liggja nú fyrir en þegar tölur voru birtar í nótt átti eftir að telja utankjörfundaatkvæði. Engar breytingar urðu á skipan sæta, Katrín Jakobsdóttir fékk flest atkvæði og Svandís næst flest. Alls kusu 1101 félagi í fimm efstu sætin í tveim kjördæmum.

Þetta eru frábær úslit fyrir konur i flokknum.  Það er því ljóst að þær Katrín Jakobsdóttir og Svandís Svavarsdóttir munu leiða lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur.  Einnig vekur athygli að af þeim tíu sem voru kjörnir eru sjö konur.  Það er nokkuð ljóst að þessir listar verða mjög sterki og VG mun fá góða útkomu í kosningunum.

    Til hamingju Katrín og Svandís


mbl.is Lokatölur komnar hjá VG í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Erlendir fangar hér á landi

Nú eru margir erlendir fangar á Litla-Hrauni, sem ætti auðvitað að senda til síns heimalands.  Við eigum nóg með okkar eigin fanga og óþarfi að flytja þá inn.

Það sagði mér maður, sem fór á Litla-Hraun til að ræða við fanganna.  Það kom skýrt fram hjá erlendu föngunum að þegar þeir væru að flytja eiturlyf til landsins að þeir vonuðust eftir að verða handteknir.  Þeir sögðu að vistin á Litla-Hrauni væri góð og líktist mest góðum hótelum í þeirra heimalöndum.  Þarna fengju þeir frítt húsnæði, frítt að borða og gætu stundað vinnu sem gæfi þeim vissar tekjur, sem þeir gætu nýtt til að senda sínum fjölskyldum.  Sem sagt lúxus líf miðað við það sem þeir áttu að venjast.  Auðvitað fréttist þetta til þeirra heimalanda og þegar þetta viðhorf er hjá þessum föngum eru menn af þeirra þjóðerni alltaf tilbúnir að reyna að smygla eiturlyfjum til landsins.  Bæði fengju þeir greitt fyrir flutninginn á dópinu og ef þeir væru handteknir biði þeirra lúxuslíf á Litla-Hrauni.

Þar sem þetta viðhorf er svona hjá þessum mönnum verður að breyta þessu og láta þá afplána refsingu í sínu heimalandi.  En þar skilst mér að ekkert lúxuslíf sé í fangelsum.  Með því að senda þessa fanga heim vinnst tvennt, íslenska ríkið sparar mikið fé og örugglega dregur úr tilraunum á að smygla eiturlyfjum til landsins.


Týnda konan

Ég setti í gær færslu um þessa konu hér á síðuna, sem vakti reiði margra og ég eyddi færslunni.  Ég viðurkenni hér með mín mistök og bið alla sem málið varðar afsökunar.  Þetta var gert í hugsanaleysi og fljótfærni.  Auðvitað vona ég eins og margir aðrir að þessi unga kona finnist hvort sem hún er lífs eða liðin og hægt verði að komast að því hvað kom fyrir þessa ungu konu, sem á eitt lítið barn.  Ættingjar konunnar eiga alla mína samúð skilið.  Ég mun gæta mín betur í framtíðinni í mínum skrifum.

Bloggfærslur 8. mars 2009

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband