Fangelsi

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt lögmann í 6 mánaða fangelsi, þar af þrjá mánuði skilorðsbundið, fyrir umboðssvik með því að selja sumarhúsalóð í Grímsnesi í heimildarleysi.

Menn teygja sig ansi langt í fasteignabraski til að næla sér í eignir á vafasaman hátt og þiggja að auki greiðslur frá þeim, sem þeir eiga að vera að vinna fyrir.


mbl.is Lögmaður dæmdur í fangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Promotor Fidei

Þetta er mjög undarlegur dómur, vægast sagt.

Þegar maður les dóminn má vel skilja sem svo að lögfræðingurinn hafi mátt telja sig eiganda lóðarinnar, og að kaupendur hefðu ekki uppfyllt kaupsamninginn. Og í versta falli er um misskilning að ræða, en ekki yfirvegað brot sem þarf að fangelsa fyrir.

3 mánuðir í steininum og 3 mánuðir á skilorði fyrir 70 ára mann, fyrir misskilning um eignarhald er mjög harður dómur.

Það jákvæða er þó að ef hann fær þetta þungan dóm fyrir sovna smáræði, yfirsjón, misskilning og litlar fjárhæðir -hvað fá þá skúrkarnir úr pólitíkinni og bönkunum? Samkvæmt sömu formúlu ættu þeir aldrei að losna úr steininum.

Promotor Fidei, 12.1.2010 kl. 12:26

2 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Lögmaður? Ja hérna. Eiga þeir ekki að vera svo klárir að kunna sitt fag? Eða keypti hann sér fræðiskírteinið á svörtum markaði í útlandinu? Spillingin er víst komin til Íslands, varúð , hætta á ferð!

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 12.1.2010 kl. 14:00

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég hef ekki lesið þennan dóm, en trú varla að saklausir menn séu dæmdir í fangelsi hér á landi.

Jakob Falur Kristinsson, 13.1.2010 kl. 10:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband