Þjófnaður

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar bíleigendur enn á ný við að geyma verðmæti í bílum sínum. Óprúttnir einstaklingar hafa verið iðnir við það að stela úr bílum að undanförnu og t.a.m var á einum sólarhring tilkynnt um fjögur innbrot í bíla í Mosfellsbæ. Úr öllum var stolið GPS staðsetningartækjum.

Það er ekki nóg að vara fólk við, heldur þarf lögreglan að breyta sínum vinnubrögðum.  Því hingað til hefur þjófum, sem lögreglan nær að handtaka verið sleppt um leið og þeir játa brot sín.  Að vísu eru öll fangelsi yfirfull, en setja mætti ökklaband á þessa þjófa svo lögreglan gæti fylgst með hvar þeir eru staddir á hverjum tíma og komið þar með í veg fyrir innbrot og þjófnað og þar með nýtt sér GPS-tækin.


mbl.is Þjófar á höttunum eftir GPS staðsetningartækjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldvin Björgvinsson

Það er nú ekki flókið að stöðva þessa áráttu þjófanna. Það þarf bara að hafa PIN kóðann virkann í tækjunum. Þannig að það þurfi að slá inn kóðann um leið og kveikt er á því.

Baldvin Björgvinsson, 14.1.2010 kl. 11:02

2 Smámynd: Börkur Hrólfsson

Já en, það eru ekki öll GPS tæki með ,,pin kóða" ! Og svo vita þjófarnir það ekki fyrr en þeir reyna að kveikja á þeim, eftir að þeir eru búnir að stela þeim.

Ég bý í Breiðholti, og legg mínum bíl á stóru bílastæði, umkringdu blokkum á alla vegu. Það kom samt ekki í veg fyrir að brotist væri inn í bílinn, og Nuvi GPS tækinu stolið, auk þess sem fleira var skemmt. Alls var tjónið u.þ.b. 350 þúsund Kr..

GPS tækið, og rúðan var það eina sem fékkst bætt, þar sem ,,annað var ekki á tækjalista bílsins" .

Börkur Hrólfsson, 14.1.2010 kl. 12:56

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Þetta er erfitt mál að leysa.

Jakob Falur Kristinsson, 15.1.2010 kl. 11:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband