Rauði krossinn

„Við vitum að þetta er rétt byrjunin. [...] Þetta eru stærstu viðbrögð sem við erum að taka þátt í sem alþjóðleg hreyfing frá flóðbylgjunni [í Indlandshafi árið 2004],“ segir Sólveig Ólafsdóttir, sviðsstjóri útbreiðslusviðs Rauða kross Íslands, aðspurð um stöðu mála á Haítí.

Hvað á Sólveig við um að þetta sé rétt byrjunin?  Á hún von á fleiri slíkum hamförum á næstunni?

Annars á Rauði krossinn á Íslandi heiður skilin fyrir fljót viðbrögð þegar svona atburðir gerast.  Það er til fyrirmyndar.


mbl.is „Þetta er rétt byrjunin“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einhver Ágúst

Rétt byrjunin á aðgerðum, þetta mun taka einhver ár...

Einhver Ágúst, 14.1.2010 kl. 11:21

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það er rétt að það mun taka mörg ár að byggja Haítí upp að nýju, en við skulum vona að hjálparstarf Rauða krossins taki aðeins nokkra mánuði.

Jakob Falur Kristinsson, 15.1.2010 kl. 09:57

3 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

Heill og sæll Jakob Falur

Ég geri ráð fyrir því að Sólveig eigi einmitt við það sem Ágúst Már nefnir. Hjálparstarfið er rétt að byrja. Hjálparstarfið mun örugglega taka mörg ár.

Ekki má heldur gleyma því að Rauði krossinn á Haítí, heimamenn, hófu strax störf. Þegar hafa bæst við 10 alþjóðleg Rauða kross teymi, hjálpargögn og vistir.

Eftir að neyðaraðstoð lýkur hefst endurreisnarstarfið. Þar sinnir Rauði krossinn á Haítí einnig mikilvægu hlutverki, líkt og Rauða kross deildir hér á Íslandi. Ég þekki það mjög vel því ég vann einmitt hjá Rauða krossi Íslands við styrkingu neyðarvarnakerfis okkar í mörg ár. Við eigum fráæra sjálfboðaliða um allt land.

Kveðja, Herdís

Herdís Sigurjónsdóttir, 16.1.2010 kl. 14:29

4 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég er sammála þér Herdís.

Jakob Falur Kristinsson, 17.1.2010 kl. 11:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband