Valdamikill í íslensku viðskiptalífi

Nú haf allir hinna nýju banka stofnað eignarhaldsfélög til að halda utan um þær eignir, sem bankarnir hafa eignast og munu eignast.  Hjá Landsbanka Íslands er fyrrum yfirmaður í bankanum orðin forstjóri fyrir eignarhaldsfélags Landsbankans.  Eitt af þeim fyrirtækjum,sem Landsbankinn hefur yfirtekið er Húsasmiðjan hf.  Ekki er farið að huga að sölu á Húsmiðjunni hf. og er það fyrirtæki því rekið á ábyrgð Landsbankans.  Spilling og siðleysi er ekki neitt sem þessi nýi forstjóri kannast við að sé til,  Þegar kom að ráðningu nýs forstjóra fyrir Húsasmiðjunnar, ákvað hinn valdamikli bankamaður að ráða frænda sinn í það starf.  En sá maður hafði verið einn af æðstu stjórnendum hjá FL-Group.  Ekki vill bankamaðurinn valdamikli  kannast við neitt annað en að við ráðningu á forstjóra Húsasmiðjunnar, hafi frændsemin engu máli skipt.  Aðeins hæfni og góð þekki á viðskiptalífinu hafi skipt máli við þessa ráðningu.  Það varð þá reynsla að fyrri störf hjá FL-Group voru svona mikils metinn af hálfu fulltrúa Landsbankans.

Nú má ætla að mörg fleiri fyrirtæki lendi hjá þessu eignarhaldsfélagi Landsbankans og þá mun þessi forstjóri Eignarhaldsfélags bankans, deila og drottna yfir þeim fyrirtækjum og ákveða hverjir geti fengið að kaupa þau og hverjir ekki.

Ég hélt að allir fyrrum toppmenn hjá öllum gömlu bönkunum fengju ekki vinnu hjá nýju bönkunum, en svo virðist ekki vera.  Því þessir menn eru nú að troða sér í hverja stjórnunarstöðuna eftir aðra og ekki litið á það neinum neikvæðum augum þótt viðkomandi hafi átt þátt í að setja bankanna á hausinn.

Spillingin og klíkuskapurinn á áfram að gilda og virðist því að menn hafi ekkert lært af hruni bankanna,


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband