Afrek

Skrítið að tala um að þegar neyðin er  stærst er hjálpin næst í þessu sambandi.  Ef stærsta neyðin í dag í Reykjavík hefur verið köttur fastur uppí tré í 6-7 metra hæð,  á sama tíma er verið að loka kaffistofu Samhjálpar á Hverfisgötu það sem útigangsmenn og öryrkjar hafa geta komið og fengið frítt að borða og kaffi og gistiskýli Samhjálpar er alltaf fullt, er þetta ekki neyðarástand?  Einnig koma fréttir um að ekki sé hægt að starfrækja leikskóla borgarinnar á eðlilegan hátt vegna manneklu, er þetta ekki neyðarástand?   Nei köttur uppí tré er mesta neyðin í Reykjavík og útskýrt að Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sé ávalt vandanum vaxnir og taldir hafa unnið mikið afrek í því að ná þessum ketti niður úr trénu.  Ja hérna, mikinn mun leggur fólk á orðið neyð eftir því hver á í hlut.


mbl.is Þegar neyðin er stærst er hjálpin næst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Æh, ósköp ertu nú húmorslaus greyið mitt... 

Ég er nokkuð viss um að greinin hafi átt að vera glettin og sniðug, en ekki þverskurður af helstu vandamálum þjóðfélagsins í dag.

Lena 9.9.2007 kl. 16:14

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Greinin átti að vera eins og hún birtist og ég var ekki að reyna að vera sniðugur, heldur benda á raunveruleg vandamál sem væru stærri og alvarlegri en köttur uppí tré.  Ekki veit ég hvaða skilning þú leggur í húmor enda er hann oft umdeildur.  Ef þú hefur lesið út úr þessu að það væri tilraun af minni hálfu til að koma á framfæri einhverju sem væri sniðugt, leggur þú þig sérstaklega fram að misskilja hlutina.  Ég hef alltaf frekar lítið álit á þeim sem eru að gera athugasemdir við skrif annarra en þora ekki að skrá sig inn þannig að maður geti þá lesið þeirra eigin skrif, hvort það er minnimáttarkennd eða hugleysi dæmi ég ekki um, en annað hvort er það.

Jakob Falur Kristinsson, 9.9.2007 kl. 18:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband