Skattstofa

Það kann að virðast í fyrstu að þetta sé eðlileg krafa bæjarstjóra á Blönduósi, en þegar betur er skoðað þá tilheyrir Blönduós í dag Norðvesturkjördæmi og skattstofa þess kjördæmis er á Ísafirði og ef þessi flutningur færi fram væri komnar tvær skattstofur í Norðvesturkjördæmi.  Þetta er aftur á móti enn ein staðfestingin á því hvað núverandi kjördæmaskipan er vitlaust og brýnt að endurskoða og úr því sem komið er ætti landið einfaldlega að vera eitt kjördæmi.
mbl.is Blönduós óskar eftir skattstofu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nei það er ekki rétt, þær eru reyndar þegar tvær því það er ein á Akranesi. Það er reyndar svo að skattumdæmin eru bundin í skattalögin og ekkert sem segir að þau þurfi að fylgja kjördæmunum, enda hafa Vestmannaeyjar til að mynda ekki verið sérstakt kjördæmi síðan fyrir 1960 en þar er skattstofa.

Vissulega fylgdu skattumdæmin gömlu kjördæmunum að miklu leyti en ekkert sem segir að það þurfi að vera með þeim hætti, enda hafa til dæmis héraðslæknisembættin aldrei verið bundin við kjördæmin og héraðsdómstólar fylgja ekki kjördæmum. Því er um að ræða verulega vanþekkingu hjá bæjarstjóranum.

Kjördæmaskipan kemur þessu máli í raun ekkert við en það er hinsvegar brýnt að fara að huga betur að henni og taka til dæmis frekar upp einmenningskjördæmi þar sem eru nokkurn veginn jafn mörg atkvæði á bak við hvern þingmann eins og er víða. Það myndi þrýsta á flokkana að vanda framboðið og leiða til þess að skerpa pólitíksar línur.

Halldór Halldórsson 20.9.2007 kl. 11:10

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Sammála þér Halldór varðandi einmenningskjördæmi, en ég vissi hreinlega ekki að þessum málum væri svona skipað varðandi skattamálin, maður er enn svo fastur í hinni gömlu kjördæmaskipan.  Þakka þér fyrir góða ábendingu, því rétt skal vera rétt.

Jakob Falur Kristinsson, 20.9.2007 kl. 11:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband