Enn er vitleysingum hampað

 

Paris Hilton sendi Britney Spears tólf bleikar súkkulaðirósir til þess að reyna að hressa hana við en eins og fram hefur komið í fréttum missti Spears tímabundið forræði yfir drengjum sínum tveimur nýverið.  Segist Paris að hún elski Britney og óski söngkonunni alls hins besta.  Hilton veitti Spears mikinn stuðning þegar sú síðarnefnda gekk í gegnum skilnað við Kewin Federline í nóvember á síðasta ári.

Ég verð nú að segja fyrir mig áð ég skil ekki til hvers er verið að birta svona fréttir eða hvað er merkilegt við það að einhver sendi tólf bleikar súkkulaðirósir til einhvers og af hverju voru þær bleikar?  Nei það er með ólíkindum hvað sumir geta talist vera frægir og ég hef áður bent á að þetta fyrirbæri sem nefnist Paris Hilton er fræg fyrir akkúrat ekki neitt nema ef vera skildi sína eigin vitleysu.


mbl.is Paris Hilton sendi Britney Spears súkkulaðirósir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband