F-listinn í Reykjavík

Margrét Sverrisdóttir, borgarfulltrúi G-lista, sagði á aukafundi borgarstjórnar um málefni Reykjavík Energy Invest, að F-listinn vildi ekki selja hlut Orkuveitu Reykjavíkur í REI enda ætti hluturinn aðeins eftir að vaxa að verðgildi.

Margrét sagði að í málinu auðmönnum verið færðar eignir borgarbúa á silfurfati.  Og ákvörðun Sjálfstæðisflokks, sem þeir kölluðu sáttina, biti höfuðið af skömminni.  Sáttin felist í því að sjálfstæðismenn vilji selja hlutinn í REI sem fyrst, ætluðu raunar að gefa hann.  Margrét sagði tímabært að snúa af braut sérhagsmuna til almennahagsmuna.

Ég horfði nú bara undrandi á þessa frétt, hvað er að ske?  Er Margrét ekki í Íslandshreyfingunni og hvernig getur hún verið borgarfulltrúi fyrir flokk sem hún er ekki lengur í og verið að túlka skoðun flokks sem hún hefur yfirgefið.  Ég hefði haldið að sá aðili sem kjörinn er til trúnaðarstarfa fyrir ákveðinn flokk verði að segja af sér öllum trúnaðarstörfum fyrir viðkomandi flokk, þegar viðkomandi yfirgefur flokkinn.


mbl.is F-listinn vill ekki selja hlut OR í REI
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þú ert ekki einn um að vera hissa Jakob, ýmsir sem ég hef hitt eru alveg kjaftstopp sama í hvaða flokki þeir eru, það sem mönnum finnst erfiðast að skilja er að Margrét Sverrisdóttir skuli sitja í borgarstjórn sem fulltrúi Frjálslynda flokksins en er sjálf í annarri stjórnmálahreyfingu.  Hún hefur aldrei mætt á fundi hjá Frjálslynda flokknum til þess að upplýsa um hvað er í gangi í borgarstjórn eins og hún ætti að gera.  Var hún persónulega kosin þarna inn eða var hún kosin inn sem fulltrúi Frjálslyndra? Nú spilar húnbara "sóló" í borgarstjórn hvað verður hennar næsta útspil?

Jóhann Elíasson, 11.10.2007 kl. 12:10

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ætli hún bjargi ekki sjálfstæðismönnum, þegar Björn Ingi vill ekki spila lengur með þeim.  Það væri í stíl við annað hjá Margréti Sverrisdóttur.

Jakob Falur Kristinsson, 11.10.2007 kl. 15:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband