Skrifaði undir samning sofandi

Enn er að koma í ljós hvað fyrrverandi borgarstjóri fylgdist lítið með.  Í Morgunblaðinu í dag segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson ekkert hafa vitað um einkaréttarsamning til 20 ára á milli REI og Orkuveitunnar, hann hafi aðeins vitað um að á eigendafundi Orkuveitunnar hafi verið undirritaður samningur um aðgang REI að tækniþjónustu hjá Orkuveitunni.  En Björn Ingi Hrafnsson sagði í "Silfri Egils" í dag að þessi samningur hefði verið lagður fram á umræddum fundi, að vísu á ensku og Vilhjálmur hefði undirritað hann ásamt öðrum og sagði einnig að þeir sem ekki hefðu tekið eftir því að þessi samningur var lagður fram og undirritaður hlytu að hafa verið sofandi á fundinum.  Í sama þætti benti Pétur Tyrfingsson, sálfræðingur á, að kannski skildi Vilhjálmur ekki ensku og því skrifað undir skjal sem hann vissi ekkert um hvað stóð í skjalinu.  Ég tel nokkuð öruggt að Vilhjálmur kunni ágætlega ensku svo trúlega er skýring Björns Inga réttari og því niðurstaðan sú að:

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson skrifaði undir einkaréttarsamning fyrir hönd Orkuveitu Reykjavíkur við REI til 20 ára steinsofandi


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Þór Hafsteinsson

zzzzzzzzzzzzzzzzzzzz!

Magnús Þór Hafsteinsson, 14.10.2007 kl. 19:41

2 Smámynd: Magnús Þór Hafsteinsson

Til áréttingar - þetta eru litlar z hér fyrir ofan...

Magnús Þór Hafsteinsson, 14.10.2007 kl. 19:42

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Allt þetta mál er með hreinum ólíkindum.  Og gott mál að Svandís virðist ætla að fara með það alla leið.  Sennilega undir miklum þrýstingi, því  það er örugglega margt óhreint í þvi pokahorni.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.10.2007 kl. 11:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband