Málin rædd

Eigendur Hitaveitu Suðurnesja (HS) munu koma saman samráðsfundar fyrir hádegi til að ræða óvissu um framtíð fyrirtækisins. Þetta kom fram í morgunfréttum Útvarps.

Haft er eftir bæjarstjóra Reykjanesbæjar að þau áform um að leggja hlut Orkuveitu Reykjavíkur í HS inn í Reykjavík Energy Invest stríði gegn hluthafasamkomulagi fjögurra stærstu hluthafanna í HS sem og að OR eignist hlut Hafnarfjarðar og ráðstafi honum á sama hátt.

Hann segir þetta ásamt almennri óvissu um framtíð fyrirtækisins verða rætt á fundinum.

Hvað er að ske hjá Árna Sigfússyni, bæjarstjóra, hann sagði í hádegisviðtali á Stöð 2 fyrir stuttu að þetta væri allt hið besta mál og öll ákvarðanataka varðandi Hitaveitu Suðurnesja væri í biðstöðu og hans skoðun væri sú að best væri að fylgja þeim ákvörðunum sem meirihlutinn í Reykjavík tæki varðandi REI því þá væri hagsmunum Suðurnesjamanna best borgið.  En nú stríðir þetta allt í einu gegn hagsmunum eigenda HS, það er gott að einhver skyldi nú hafa komið vitinu fyrir Árna Sigfússon og hver ætli hafi orðið til þess?  Nú auðvitað Björn Ingi Hrafnsson. 


mbl.is Eigendur Hitaveitu Suðurnesja ræða framtíð fyrirtækisins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband