Nýtt við stjórn fiskveiða

Nú held ég að menn séu gjörsamlega að tapa öllum áttum varðandi stjórn fiskveiða og nýjasta tilraunin sem blessuð er í bak og fyrir af Hafró og Sjávarútvegsráðherra er að leyfa frystitogaranum Örfirisey RE-4 sem er aðeins 1.845 brúttótonn að stærð að toga um allt Ísafjarðardjúp til að reyna að veiða ýsu.  Þetta verður til þess að smábátar við Djúp sem hafa róið í Djúpið ef veður er þannig að ekki er hægt að fara langt út, fá nú ekki bein úr sjó.  Er þetta það sem koma skal á núverandi fiskveiðiári, að hleypa togaraflotanum upp í fjöru, inn á alla firði og flóa til að sanna það, að hægt sé að ná ýsukvótanum þótt þorskkvótinn sé mjög lítill.  Hverskonar andskotans vitleysa er þetta, eru þessir menn orðnir kolruglaðir?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband