Írak

Það var fróðlegur þáttur hjá þeim Kompás-mönnum í gærkvöldi.  En þar voru þeir að fara yfir stöðuna í Írak og allt það klúður sem bandaríkjamenn hafa gert þar og studdir dyggilega af Íslandi.  Það var birt myndbrot að því þegar Davíð Oddsson þáverandi forsætisráðherra var að dásama þessar aðgerðir í Írak og hve ánægjulegt það væri að Ísland skyldi fá að vera með í leiknum.  Það kom fram að allur sá mannfjöldi sem fagnaði þegar styttan af Sadam Hussein var felld, var fólk sem var safnað úr fátækrahverfum Bagdad og fékk greitt fyrir að taka þátt í því leikriti sem Kaninn var að setja á svið.  Allur sá fagnaður sem innrásarherinn átti von á, var ekki fyrir hendi og því var neyðst til að setja það á svið.  Margir af fyrrverandi hershöfðingjum í Bandaríkjaher, hafa að undanförnu verið að lýsa því hörmungarástandi sem þarna er og hvað þessi innrás hafi verið mikil mistök.  Nú er svo komið að BNA hafa þurft að ráða málaliða frá ýmsum löndum til að berjast í Írak og hafa mörg fyrirtæki sem eru með slíka starfsemi grætt milljarða á slíkum samningum og talið er að alls séu nú starfandi um 50 þúsund málaliðar í Írak til viðbótar öllum herafla BNA og ekki ræðst við eitt né neitt og nokkrar miljónir íbúa Íraks, eru orðnir flóttamenn.  Málaliðarnir hafa þau fyrirmæli "Að skjóta fyrst og spyrja svo."  Ekki veit ég hvernig BNA ætlar að losna út úr þessari vitleysu.  Þessi innrás var gerð án samþykkis Sameinuðu Þjóðanna og brýtur þar með alþjóðalög.  Vissulega var Sadam Hussein brjálaðir vitleysingur, sem nú er búið að hengja, en það réttlæti ekki að ráðast inn í landið og setja þar allt á annan endann.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband