Landsvirkjun

Núverandi ríkisstjórn stefnir ekki að einkavæðingu Landsvirkjunar en spurningunni um hvort hún verði gerð að hlutafélagi er enn ósvarað. Þetta kom fram í máli Geirs H. Haarde forsætisráðherra, á Alþingi í morgun.

Hvað er nú að ske eru sjálfstæðismenn allt í einu orðnir hræddir við einkavæðingu?  Því vitað er að þetta stóð til.  Kannski hafa atburðirnir í borgarstjórn orðið þess valdandi?  En batnandi mönnum er best að lifa.


mbl.is Ekki stefnt að einkavæðingu Landsvirkjunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það var tekizt á um þetta á landsfundi í vor. Haldinn var sérstakur morgunfundur og skoðanir skiptar. Auðvitað vilja Sjálfstæðismenn að samkeppni milli einkafyrirtækja sé sem víðast. Á hitt ber að líta að samkeppni er ekki í framleiðslu orku á Íslandi þótt reynt hafi verið að koma henni á. Þá var nefnt að einkaaðilar væru betri í rekstri, en á móti að rekstur Landsvirkjunar verður smám saman fólginn í því einu að hirða tekjur, því að kostnaður við vatnsaflsvirkjanir er nánast enginn þegar stofnkostnaður hefur verið greiddur. Niðurstaðan varð sú að einkavæðing orkufyrirtækja varð ekki samþykkt sem stefna Sjálfstæðisflokksins.

Skúli Víkingsson 18.10.2007 kl. 16:20

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Aldrei hef ég orðið svo frægur að sitja landsfundi Sjálfstæðismanna og ekkert verið að velta fyrir mér því sem þar er samþykkt og gert.  Ég dreg ekki í efa að að á landsfundi hafi verið samþykkt, að einkavæðing orkufyrirtækja væri ekki stefna Sjálfstæðisflokks.  Hins vegar var ástæða þess að Geir H. Haarde gaf þessa yfirlýsingu sú að tveir af þingmönnum höfðu sagt á Alþingi að þeir vildu að Landsvirkjun yrði einkavædd.  Þetta voru Sigurður Kári Kristjánsson og Bjarni Ármannsson, eftir því að dæma eru þeir ekki að fylgja stefnu flokksins á Alþingi.

Jakob Falur Kristinsson, 19.10.2007 kl. 08:29

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég ætla að leiðrétta hér aðeins.  Það var Illugi Gunnarsson alþm. sem ræddi mest um einkavæðingu Landsvirkjunar, en ekki Sigurður Kári og Bjarni Ármannsson.

Jakob Falur Kristinsson, 19.10.2007 kl. 13:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband