Konur

Alls brautskráðust 4832 nemendur af framhaldsskólastigi með 5317 próf á síðasta skólaári. Er þetta fjölgun um 31 nemendur frá fyrra ári, eða 0,7%. Aldrei áður hafa svo margir nemendur útskrifast af framhaldsskólastigi á einu skólaári, að sögn Hagstofunnar. Konur voru fleiri en karlar eða 52,5% brautskráðra nemenda.

Þetta er það sem ég hef oft haldið fram.  Konur eru einfaldlega betur gefnar og eiga auðveldara með nám en karlar.  Nú held ég að við karlar verðum að fara að gæta okkar, því augljóst er að innan fárra ára verða það konur sem ráða hér öllu.  Þetta er skynsamleg byrjun hjá konum að byrja fyrst á því að mennta sig vel og taka síðan öll völd bæði í stjórnmálum og fyrirtækjum.

SmileTil hamingju íslenskar konur.Smile


mbl.is Fleiri konur en karlar útskrifast úr framhaldsskólum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Okkar tími mun koma   Fyrr en varir. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.10.2007 kl. 12:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband