Stjórn þorsksins

Danskir sérfræðingar segja, að væntanleg stjórnarskipti í Póllandi séu góðar fréttir fyrir þorskinn í Eystrasalti þar sem fráfarandi stjórn hafi litið framhjá ólöglegum þorskveiðum pólskra sjómanna undanfarin misseri.

Verðum við ekki að fá svona ríkisstjórn hér á Íslandi til að bjarga þorskstofninum, því ekki vilja eða geta núverandi stjórnvöld gert neitt af viti.  Munar okkur nokkuð um að fá nokkra pólverja hingað til viðbótar öllum hinum og gera þá að ráðherrum og jafnvel skipta um flesta þingmenn a.m.k. stjórnarliðið.  Verðum við ekki að reyna að gera allt sem hægt er fyrir þorskinn. 


mbl.is Stjórnarskipti í Póllandi jákvæð fyrir þorsk í Eystrasalti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Samkvæmt þessu ætti að vera nóg að losna við Sjálfstæðisflokkinn og Einar Kristinn en samt sem áður væri eftir að losna við HAFRÓ og LÍÚ.  Ég er hræddur um að við myndum þurfa eitthvað  róttækara en Pólverjarnir.

Jóhann Elíasson, 22.10.2007 kl. 23:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband