Norðursjór

Vísindamenn Alþjóðahafrannsóknaráðsins hafa lýst því yfir að þorskstofninn í Norðursjó sé að rétta við og óhætt sé að heimila takmarkaðar veiðar úr honum á næsta ári.  Þetta eru nokkur tíðindi því ráðið hefur lagt til þorskveiðibann í Norðursjó síðustu sex árin.

Stjórnvöld hafa hinsvegar ekki farið að ráðum fiskifræðinga um veiðibann undanfarin ár og var þorskkvótinn í Norðursjó ákveðinn tæp 20 þúsund tonn fyrir yfirstandandi ár og rúm 23 þúsund tonn í fyrra.  Vísindamennirnir áætla að þegar brottkast og ólöglegar landanir séu tekin með í reikninginn hafi þorskaflinn úr Norðursjó verið um 60 þúsund tonn á síðasta ári en ekki 23 þúsund tonn eins og kvótinn sagði til um.  Fishing News greindi frá þessu.

Hvernig í ósköpunum getur þetta gengið upp, það er lagt til algert veiðibann en veidd 60 þúsund tonn og samt er stofninn á uppleið.  Þetta á ekki að vera hægt samkvæmt reiknilíkani Hafró en samt er þetta að ske.  Ég held nú að Hafró og íslensk stjórnvöld verði að fara aðeins að hugsa sinn gang þegar svona fréttir koma.  Þessi þorskstofn í Norðursjó hefur lengi verið talinn einn sá allra lakasti í Norður-Atlandshafi en er nú allur að koma til þrátt fyrir 60 þúsund tonna veiði þegar vísindin lögðu til algert veiðibann.  Stofninn ætti með öllu að vera algerlega hruninn en þá gerir hann öllum fræðingum þann óleik að taka upp á því að fara að stækka og stækka.  Hvað er eiginlega að hjá þessum þorskstofni?  Er hann orðinn kolruglaður?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband