Barentshaf

Nú hafa Norðmenn og Rússar náð samkomulagi um að heildarkvóti þorsks í Barentshafi verði 430.000 tonn á árinu 2008 og að kvóti strandþorsks verði 21.000 tonn.  Samtals er því þorskkvótinn 451.000 tonn, sem er aukning um 6.000 tonn frá yfirstandandi ári.  Sagt er frá því að þessa aukningu megi rekja til þess að tekist hafi að draga úr ólöglegum á þorski í Barentshafi.

Ýsustofninn í Barentshafi er í góðu ástandi og verður ýsukvótinn aukinn úr 150.000 tonnum í 155.000 tonn.  Þá náðist samkomulag um að engar loðnuveiðar yrðu leyfðar í Barentshafi á næsta ári og ekki heldur beinar veiðar á karfa.

Það hefur lengi verið vitað að þrátt fyrir útgefna veiðikvóta í Barentshafi, þá hafa Rússar veitt langt umfram sína kvóta og ólöglegar veiðar hafa verið miklar.  Hefur oft verið rætt um að umframveiðar á þorski geti numið hundruðum þúsunda tonna á ári.  Samt er þetta sá þorskstofn sem talinn er vera sterkastur í Norður-Atlandshafi, en það er ekki bara þorskurinn sem er sterkur heldur hefur rækjustofninn verði að vaxa mikið.  Gæti verið að loðnuveiðibannið skipti svona miklu máli?  Við íslendingar hættum nú ansi miklu með því að skera þorskkvótann niður í 130.000 tonn en ætlum samt að auka loðnuveiðar.  Hvernig væri nú að gera aðra tilraun sem væri sú að hafa þorskkvótann 200.000 tonn og banna loðnuveiðar í eitt ár.  Höfum við einhverju að tapa?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband