Tollfríðindi ferðamanna

Reglur um tollfríðindi ferðamanna eru nokkuð mismunandi eftir löndum. Eins og sagt var frá í 24 stundum í gær mega ferðamenn ekki koma með vörur fyrir meira en 46 þúsund krónur til Íslands án þess að greiða aðflutningsgjöld. Í Noregi er hámarkið sex þúsund norskar krónur eða um 65 þúsund íslenskar.

Björgvin G. Sigurðsson var spurður um þetta atriði í Sjónvarpinu í gær.  Hann sagði að þessar upphæði sem nú væri miðað við hér á landi væru fáránlega lágar og því yrði að breyta.  Þegar hann var spurður um þetta frekar var svarið að þetta væri eitt af þeim atriðum sem þyrfti að endurskoða og væri í stjórnarsáttmála ríkistjórnarinnar og yrði gert samhliða miklum breytingum sem til stæði að gera á hinum ýmsu vörugjöldum og tollum.  Þá var hann spurður hvort ekki væri hægt að breyta bara þessu tiltekna máli svaraði hann brosandi að það væri lítið mál og í raun ósköp einfalt.  Síðan tók hann sig til og fór að ræða um evru og hvað allir væru góðir í ríkisstjórninni og bla,bla.  Aldrei svaraði ráðherra þeirri einföldu spurningu af hverju er ekki hægt að breyta strax tollfríðindum ferðamanna, sem ráðherrann var nýbúinn að segja að væri óskaplega einfalt.  Eftir hverju er verið að bíða?  Eða er kannski ekkert að marka hvað ráðherrann var að segja?


mbl.is Ólíkar reglur um tollfríðindi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband